Geðheilsumiðstöð barna er flutt og móttaka hófst í Vegmúla 3 mánudaginn 25. september.
Velkomin í Vegmúla 3
Almennar upplýsingar
Opnunartími 8:00 til 12:00 og 12:45 til 16:00.
Svarað er í síma 8:00 til 12:00 og 12:45 til 15:00.
Tilvísanir
Vegna beiðna um þjónustu fyrir börn þarf tilvísanir frá fagfólki
Þverfagleg þjónusta
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir börn að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga.
Þverfaglegur starfshópur vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Þátttakendur greiða fyrir námskeið, að öðru leyti er þjónustan gjaldfrjáls.
Geðheilsumiðstöð barna heldur fræðslu- og meðferðarnámskeið fyrir foreldra og börn
Námskeið fyrir foreldra og börn
Geðheilsumiðstöð barna heldur fræðslu- og meðferðarnámskeið fyrir foreldra og börn.
Barn verður til - og foreldrar líka!
Tengslamiðað námskeið fyrir verðandi foreldra.
Meira um námskeiðið
Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar
Fyrir foreldra ungra barna.
Meira um námskeiðið
Ertu að tengja? Uppeldi, tengsl og foreldrahlutverkið
Námskeiðið er ætlað foreldrum 1-5 ára barna.
Meira um námskeiðið
Uppeldi barna með ADHD
Fyrir foreldra barna með hamlandi ADHD einkenni.
Meira um námskeiðið
Klókir litlir krakkar
Fyrir foreldra 3 - 6 ára barna sem eru ofurvarkár og kvíðin.
Meira um námskeiðið
Snillingarnir
Fyrir 9 - 12 ára börn sem greinst hafa með ADHD.
Meira um námskeiðið
Vinasmiðjan
Fyrir 10 - 12 ára börn sem greinst hafa á einhverfurófi.
Meira um námskeiðið
Meðferð fyrir unglinga með OCD
Fyrir foreldra og unglinga á aldrinum 13 - 18 ára.
Meira um námskeiðið
Leiðbeinendanámskeið fyrir fagfólk
Reglulega er boðið er upp á námskeið fyrir fagfólk sem vill öðlast réttindi til að vera leiðbeinendur á námskeiðum sem Geðheilsumiðstöð barna hefur þróað.
Klókir litlir krakkar - Leiðbeinendanámskeið
Nánari upplýsingar
Snillingarnir - Leiðbeinendanámskeið
Nánari upplýsingar
Uppeldi barna með ADHD - Leiðbeinendanámskeið
Nánari upplýsingar
Önnur námskeið fyrir fagfólk
ADIS Námskeið fyrir fagfólk
ADIS kvíðagreiningarviðtalið fyrir börn er notað af fagfólki um allan heim. GMB stendur reglulega fyrir námskeiði um notkun viðtalsins.
Meira um námskeiðið
Greiningarteymin
Greiningarteymin (yngri barna 6-12 ára og eldri barna 13-18 ára) sinna nánari greiningu barna og unglinga að 18 ára aldri ef sterkar vísbendingar eru um athyglisbrest, ofvirkni (ADHD) eða skyldar raskanir, svo sem tilfinningavanda, hegðunarerfiðleika, samskiptavanda eða hamlandi einkenni einhverfurófs.
Viðmið er að greind sé almennt yfir viðmiðum um þroskahömlun og fötlun af þeim sökum. Ef helstu áhyggjur snúa að greindarskerðingu, málþroskaröskun eða sértækum námserfiðleikum heyrir málið undir skólaþjónustu en ekki GMB. Ekki skal vísa börnum í nánari greiningu ef þau eru þegar á biðlista hjá öðrum greiningaraðilum.
Skilyrði fyrir tilvísun í greiningu er að frumgreining hafi bent til vanda sem veldur hömlun í daglegu lífi og að mælt hafi verið með markvissri íhlutun. Ef frumgreining gefur til kynna að vandinn sé vægur eða miðlungs alvarlegur skal fyrst láta reyna á úrræði í nærumhverfi og endurmeta stöðuna eftir um 6 til 12 mánuði.
Ráðgjafar- og meðferðarteymi
Ráðgjafar- og meðferðarteymi veita ráðgjöf og meðferð til barna, unglinga og fjölskyldna þeirra sem glíma við geðheilsuvanda sem krefst aðkomu þverfaglegs teymis. Einnig veitir teymið ráðgjöf til fagaðila og annarra þjónustuaðila á landsvísu.
Mælst er til að forvinna hafi átt sér stað og reynt hafi verið á úrræði í nærumhverfi áður en vísað er í ráðgjöf og/eða meðferð á GMB.
Teymið er hugsað fyrir börn með 2.stigs geðheilsuvanda sem þurfa þverfaglega aðkomu teymis og fjölskyldur þeirra. Það er að segja börn sem þurfa meiri þjónustu en 1. stigs heilbrigðisþjónusta getur veitt og eru ekki í þörf fyrir sérhæfða 3. stigs þjónustu eða bráða þjónustu.
Þjónustan er takmörkuð við ákveðin tíma og miðar að því að tengja einstaklinga og fjölskyldur við aðra þjónustu í nærumhverfi eða í aðra viðeigandi þjónustu ef þörf er á.
Fjölskylduteymi
Fjölskylduteymið veitir þjónustu til verðandi foreldra og foreldra ungra barna (0-5 ára) sem þurfa tengslaeflandi meðferð m.a. vegna eigin vanlíðunar, flókins og/eða fjölþætts vanda. Einnig ef áhyggjur eru af líðan eða þroska barns.
Fjölskylduteymið er fyrir þá sem þurfa meiri og sérhæfðari þjónustu á meðgöngu og eftir fæðingu en er veitt á heilsugæslustöðvum.
Markmiðið með aðkomu teymis er:
- Að efla örugga tengslamyndun á milli foreldra og barns.
- Að foreldrar greini eigin líðan og reynslu frá líðan og reynslu barnsins og bregðist við á viðeigandi hátt.
Grunnhugmyndafræði teymisins byggir á tengslaeflandi nálgun. Meðferð er aðlöguð að þörfum þjónustuþega og notast er við gagnreyndar tengslaeflandi meðferðir og innan teymis er sérþekking ólíkra fagstétta.
Þjónustan fer að mestu leyti fram í húsnæði teymisins Bæjarlind 1-2.
Tilvísanir til GMB
Fagaðilar í heilbrigðis-, fjölskyldu-, skóla- og félagsþjónustu geta vísað börnum að uppfylltum skilyrðum um forvinnu. Beiðnir skulu berast á sérstökum eyðublöðum sem finna má hér á síðunni (sama eyðublað fyrir greiningarteymi eða ráðgjafar- og meðferðarteymi og sér eyðublað fyrir fjölskylduteymi) ásamt leyfi foreldra/barna og öðrum fylgigögnum.
Ef óvissa er um þörf á aðkomu GMB má leita samráðs í tölvupósti (gedheilsumidstod.barna@heilsugaeslan.is) eða símleiðis (513-6600).
Leiðbeiningar
Þegar vísað er til Greiningarteyma þarf eftirfarandi til að tilvísun teljist fullnægjandi:
- Tilvísunareyðublað sem er vel út fyllt og á rafrænan hátt (sjá Tilvísunareyðublað til Geðheilsumiðstöð barna að neðan).
- Skriflegt leyfi foreldra fyrir tilvísun, frekari upplýsingaöflun og dreifingu gagna. Frá 16 ára aldri þarf einnig leyfi barns (sjá eyðublöð að neðan)
- Sálfræðiskýrsla með samantekt um:
- Þroska- og félagsstöðu barns
- Helstu áhyggjur og ástæðu tilvísunar
- Núverandi stöðu barns heima, í skóla og námi
- Hegðun, líðan og samskipti barns við fullorðna og jafnaldra
- Líðan og aðstæður fjölskyldunnar
- Núverandi inngrip og stuðningur
- Fyrri inngrip og stuðningur
- Væntingar til þjónustu GMB
- Þroska- og félagsstöðu barns
- Stuðningsáætlun, liggi hún fyrir.
- Tölulegar niðurstöður úr nýlegu vitsmunaþroskaprófi (WPPSI-RIS, WISC-IVIS) – hrátölur, mælitölur og prófílar.
- Tölulegar niðurstöður matslista (ADHD, SDQ og ASSQ auk CARS-ST ef beðið er um athugun einhverfueinkenna) – hrátölur, mælitölur og prófílar, sem sýna sterkar vísbendingar um hamlandi vanda barnsins yfir viðmiðunarmörkum (t.d. 1,5 staðalfráviki yfir meðaltali jafnaldra).
- Önnur gögn sem lýsa vanda og styðja þörf á nánari greiningu.
Þegar vísað er til Ráðgjafar- og meðferðarteymis þarf eftirfarandi til að tilvísun teljist fullnægjandi:
- Tilvísunareyðublað sem er vel útfyllt og á rafrænan hátt (sjá Tilvísunareyðublað til Geðheilsumiðstöð barna að neðan).
- Skriflegt leyfi foreldra fyrir tilvísun, frekari upplýsingaöflun og dreifingu gagna. Frá 16 ára aldri þarf einnig leyfi barns (sjá eyðublöð að neðan)
- Samantekt um:
- Þroska- og félagsstöðu barns
- Helstu áhyggjur og ástæðu tilvísunar
- Núverandi stöðu barns heima, í skóla og námi
- Hegðun, líðan og samskipti barns við fullorðna og jafnaldra
- Líðan og aðstæður fjölskyldunnar
- Núverandi inngrip og stuðningur
- Fyrri inngrip og stuðningur
- Væntingar til þjónustu GMB
- Þroska- og félagsstöðu barns
- Stuðningsáætlun, liggi hún fyrir.
- Önnur gögn sem lýsa vanda og styðja við umbeðna þjónustu.
Þegar vísað er til Fjölskylduteymis þarf eftirfarandi til að tilvísun teljist fullnægjandi:
- Tilvísunareyðublað sem er vel útfyllt og sendist í Sögu eða á rafrænan hátt (sjá Tilvísunareyðublað til Fjölskylduteymis Geðheilsumiðstöð barna að neðan).
- Samþykkisyfirlýsingu vegna þjónustu við fjölskyldu ef barn er fætt (sjá eyðublað að neðan) .
- Samantekt um:
- Helstu áhyggjur og ástæðu tilvísunar
- Líðan og aðstæður fjölskyldunnar
- Líðan barns ef fætt, líkamleg og tilfinningaleg viðbrögð (svefn, næring og grátur)
- Mat á tengslamyndun foreldra við barn í móðurkviði/fætt
- Núverandi inngrip og stuðningur
- Fyrri inngrip og stuðningur
- Væntingar til þjónustu Fjölskylduteymis GMB
- Helstu áhyggjur og ástæðu tilvísunar
- Önnur gögn sem lýsa vanda og styðja við umbeðna þjónustu.
Athugið
GMB hefur heimild til að vísa máli frá komi í ljós við inntöku að meðferð máls eigi heima í öðrum kerfum eða sé í vinnslu annarsstaðar og þjónusta GMB muni ekki koma til með að bæta við þá þjónustu. Bent er á að GMB er 2. línu geðheilbrigðisþjónusta og því mikilvægt að reynt hafi verið á úrræði og þjónustu í 1. línu áður en til meðferðar kemur hjá miðstöðinni. Ef metið er við innritun máls að ekki hafi reynt á inngrip í 1. línu er GMB heimilt að vísa máli frá.
Eyðublöð og gagnasending
Tilvísun til greiningarteymis eða ráðgjafar- og meðferðarteymis
- Tilvísunareyðublað fyrir greiningarteymi og ráðgjafar og meðferðarteymi
- Samþykkisyfirlýsing vegna þjónustu við börn og ungmenni
- Enska - Samþykkisyfirlýsing vegna þjónustu við börn og ungmenni
Nánari lýsingar á eiginleikum og notkun prófa og matslista fást í flipanum Matstækjalýsingar.
Fagaðilar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) geta sent tilvísanir í gegnum sjúkraskárkerfið Sögu.
Tilvísun til fjölskylduteymis
Heilbrigðisstarfsfólk sendir tilvísun rafrænt í gegnum Sögu.
- Þegar sent er innan HH er notað: Beiðni um meðferð
- Þegar send er rafræn tilvísun milli stofnanna er notað: Tilvísun
- Samþykkisyfirlýsing vegna þjónustu við fjölskyldu
Annað fagfólk, sem hefur ekki aðgang að Sögukerfinu, notar þetta eyðublað.
Örugg gagnaskil
Tilvísanir sem ekki er hægt að senda í gegnum Sögu skal senda rafrænt í gegn um Signet Transfer. Smella á tengilinn hér fyrir neðan, skrá sig inn með rafrænum skilríkjum, velja fyrirtæki Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis, svo hópinn Geðheilsumiðstöð barna - tilvísanir og draga skjal inn á viðeigandi reit. Þetta á við um allar tilvísanir sem senda á til GMB, óháð því teymi sem vísað er til.
Ferli eftir tilvísun
Ferli eftir tilvísun til Greiningarteyma
Allar tilvísanir eru metnar af þverfaglegu inntökuteymi fljótlega eftir móttöku. Ef gögn eru metin fullnægjandi fá foreldrar, tilvísandi og heimilislæknir svar sem staðfesta að barnið sé komið á biðlista og veitir ýmsar viðeigandi upplýsingar.
Ef upplýsingar í tilvísun benda ekki til að þörf sé á aðkomu GMB er málinu vísað frá. Sama á við ef tilvísunargögn eru ófullnægjandi og umbeðin viðbótargögn berast ekki innan tilskilins tíma.
Eftir biðtíma, sem fer eftir stöðu á biðlista og alvöru máls, eru næstu skref þessi:
- Símtal við foreldra og öflun viðbótarupplýsinga, ef þörf krefur.
- Þverfaglegt greiningarferli.
- Skilaviðtal með foreldrum/barni um niðurstöður og æskileg úrræði.
- Skilafundur með foreldrum, skólafólki og e.t.v. fleiri þjónustuaðilum til að ræða niðurstöður, úrræði og eftirfylgd.
Ferli eftir tilvísun til Ráðgjafar- og meðferðarteymis
Allar tilvísanir eru metnar af þverfaglegu inntökuteymi fljótlega eftir móttöku. Ef málið er talið sannarlega eiga heima hjá GMB fá foreldrar, tilvísandi og heimilislæknir svar sem staðfesta að barnið sé komið á biðlista og veitir ýmsar viðeigandi upplýsingar.
Ef upplýsingar í tilvísun benda ekki til að þörf sé á aðkomu GMB er málinu vísað frá.
Eftir biðtíma er haft samband við foreldra og aðra viðeigandi aðila til þess að afla upplýsinga um stöðu málsins. Samkvæmt eðli málsins og í samráði við barn/ungling og forsjáraðila er ýmist veitt ráðgjöf, meðferð eða virkjuð önnur úrræði í öðrum teymum innan GMB, öðrum kerfum og/eða nærumhverfi.
Ferli eftir tilvísun til Fjölskylduteymis
Allar tilvísanir eru teknar fyrir af inntökuteymi sem er skipað lækni, teymisstjóra og meðferðaraðila. Ef upplýsingar í tilvísun benda til þess að þörf sé fyrir aðkomu fjölskylduteymis er tilvísun samþykkt á biðlista og tilvísandi og foreldri/foreldrar fá skilaboð um að tilvísun hafi verið samþykkt á biðlista í teyminu. Á biðtíma er tilvísun skimuð og haft er samband við foreldri/foreldra þegar fer að koma að tímabókun hjá teyminu.
Ef upplýsingar í tilvísun benda ekki til að þörf sé á aðkomu fjölskylduteymis er málinu vísað frá og haft samband við viðeigandi aðila.
Mikilvægt er að tilvísun sé vel útfyllt svo hægt sé að taka afstöðu til hennar. Ófullnægjandi tilvísun verður endursend.
Greining - hvað og til hvers?
- Greining er ferli athugana, prófana og viðtala auk upplýsingaöflunar frá öðru fagfólki.
- Greining kortleggur styrkleika og veikleika barns í samhengi við umhverfisþætti.
- Tilgangur greiningar er að svara hvort barn hefur frávik, hver og hve hamlandi þau eru og hvaða úrræði gætu gagnast.
- Úrræði mælt með eftir greiningu geta verið aðgerðir sem styðja við nám, hegðun og líðan barns, einstaklings- eða hópfærniþjálfun barns og ráðgjöf, fræðsla og færniþjálfun foreldra.
- Þverfaglegur hópur fagaðila kemur að greiningu GMB.
- Fyrstu formlegu athuganir eftir að grunur vaknar um frávik nefnast frumgreining.
- Nánari greining er þegar þörf er á víðtækari og sérhæfðari athugunum með tilliti til niðurstöðu frumgreiningar.
Frumgreining
Frumgreining á við um fyrstu formlegu athuganir sem gerðar eru eftir að grunur vaknar um frávik í þroska, hegðun eða líðan barns og fer oftast fram á 1. þjónustustigi eða hjá sérfræðingum á stofu.
Fyrsti grunur um frávik getur komið fram í skoðunum í ung- og smábarnavernd heilsugæslu. Ef áhyggjur vakna hjá foreldrum ættu þeir fyrst að leita til heilsugæslu, en hafi kennarar áhyggjur leita þeir til skólaþjónustu síns skóla, eftir samráð við foreldra og samstarfsfólk.
Tilgangur frumgreiningar er að kortleggja stöðu og meta þörf á íhlutun og nánari greiningu. Því fyrr sem frávik greinast og íhlutun hefst, því meiri líkur eru á góðum árangri. Vitneskja um hver vandi barns er eykur skilning á þörfum þess, spáir fyrir um framtíðarhorfur og leiðbeinir um hvers konar úrræði gagnist best.
Í framhaldinu er ráðlagt um úrræði í samræmi við niðurstöður t.d. stuðning eða sérkennslu í skóla, meðferð eða sértæka færniþjálfun fyrir barn og/eða ráðgjöf og fræðslu fyrir foreldra.
Nánari greining
Nánari greining kemur til ef frumgreining gefur sterkar vísbendingar um eina eða fleiri raskanir sem þörf er á að kanna og skilgreina betur. Samhliða tilvísun í nánari greiningu þarf að tryggja að barn og foreldrar fái úrræði í samræmi við fyrri niðurstöður.
Nánari greining er ferli athugana, prófana og greiningarviðtala þar sem fleiri en einn fagaðili kemur við sögu. Hluti af greiningarferlinu er að afla upplýsinga frá foreldrum og kennurum, m.a. til að skoða breytingar yfir tíma og meta árangur íhlutunar sem þegar hefur verið reynd.
Nánari greining getur staðfest eða hrakið vísbendingar um röskun og/eða leitt í ljós aðrar raskanir eða víðtækari vanda. Niðurstöðurnar nýtast til að skipuleggja heppilegasta innihald og framkvæmd áframhaldandi íhlutunar. Auk sérhæfðra úrræða í skóla er oft mælt með lyfjameðferð fyrir barn og ráðgjöf, sálfræðimeðferð, fræðslu og færniþjálfun fyrir barn og/eða foreldra.
Ýmsar sérhæfðar stofnanir sinna nánari greiningu þroska- og hegðunarfrávika, svo sem GMB, BUGL og GRR.
Matstæki sem notuð eru á GMB eða sem þarf vegna tilvísana
Matstæki sem notuð eru á GMB eða sem þarf vegna tilvísana
Kvíði, líðan - Matstæki
GMB gefur út viðtalshefti á íslensku og heldur ADIS námskeið fyrir fagfólk.
RCADS foreldralistinn er ætlaður foreldrum barna og ungmenna á aldrinum 8-18 ára og metur kvíða og depurðareinkenni. Hann er samsettur af fimm kvörðum: Félagskvíði, Ofsakvíði, Aðskilnaðarkvíði, Almennur kvíði, Áráttu-þráhyggja og Depurð.
Revised Children´s Anxiety and Depression Scale-Youth Version
RCADS sjálfsmatslistinn er ætlaður börnum og ungmennum á aldrinum 8-18 ára og metur kvíða og depurðareinkenni. Hann er samsettur af fimm kvörðum: Félagskvíði, Ofsakvíði, Aðskilnaðarkvíði, Almennur kvíði, Áráttu-þráhyggja og Depurð.
Hegðun, ADHD - Matstæki
(CPT: Conners’ Continuous Performance Test)
CPT er tölvupróf sem metur hvernig 6 ára og eldri börnum gengur að stjórna og viðhalda athygli og halda aftur af hvatvísi. Í prófinu fylgist barnið með og bregst við bókstöfum sem birtast á tölvuskjá en þarf að halda aftur af svörun þegar einn tiltekinn stafur birtist. Prófið gefur upp ákveðnar líkur á hvort barn glími við athyglisbrest- og ofvirkni/hvatvísi (ADHD) með því að bera frammistöðu saman við svör bandarískra barna greind með ADHD og samanburðarhóp án ADHD.
ADHD Rating Scale
Með ADHD listanum eru metin einkenni um ofvirkni og athyglisbrest. Þau einkenni sem spurt er um samsvara greiningaratriðum í DSM-IV greiningarkerfinu. Svör foreldra og kennara eru borin saman við það sem vitað er um svör foreldra og kennara íslenskra og bandarískra barna og unglinga á aldrinum 4–16 ára.
SDQ: Strength and Difficulties Questionnaire
SDQ listinn gefur vísbendingar um hegðun, tilfinningar og félagsleg samskipti barna 5 ára og eldri. Svör fullorðinna er þekkja barnið vel eru borin saman við svör foreldra og kennara íslenskra barna. Gefin eru heildarstig, auk þess sem stig fást fyrir undirkvarða sem taka til ofvirkni, erfiðleika í, tilfinningum og samskiptum við jafnaldra, auk hæfni í félagslegum samskiptum.
Dagleg færni, skyn- og hreyfiþroski - Matstæki
SP: Sensory Profile2
Matslistinn gefur mynd af skynúrvinnslu barna frá fæðingu til 14:11 ára.
Metið er skynúrvinnslumynstur barna eins og það birtist við athafnir barna heima, í skóla eða í samfélaginu. Foreldrar eða kennarar merkja við tíðni viðbragða barns við ýmsum daglegum skynhlöðnum atburðum/áreitum. Niðurstöður gefa mynd af skynúrvinnslu barnsins og þörf fyrir aðlögun viðfangsefna og umhverfis. Matstækið er staðalbundið og viðmið eru bandarísk.
M-FUN: Miller function and participation scales
M-Fun er staðalbundið próf börn 2;6 til 7;11 ára. Prófið skiptist í tvö aldursbil (2;6-3;11 og 4;0-7;11) og er metur færni við að samhæfa Sjón og hreyfingar; Fínhreyfingar og Grófhreyfingar. Leggja má hlutana fyrir hvern fyrir sig eða alla saman. Niðurstöður fyrir hvern hluta eru settar fram í mælitölum og hundraðsröðum. Matslistar fyrir foreldra og kennara um þátttöku í heima- og skólaumhverfi fylgja matstækinu. Viðmið eru bandarísk.
M-ABC2 er staðalbundið hreyfiþroskapróf fyrir 3-16 ára
börn Prófið skiptist í þrjú aldursbil (3-6; 7-10; 11-16).
Metnir eru þrír þroskaþættir: Fínhreyfingar og fingrafimi, Sambeiting sjónar og hreyfinga, Jafnvægi í kyrrstöðu og á hreyfingu. Niðurstöður eru settar fram í staðaltölum (meðalgeta er 7-13) og hundraðsröð þar sem (miðgildi er 50). Viðmið eru bresk.
FBDI er spurningalisti um þátttöku og færni barna við ýmsar daglegar athafnir.
Spurt er um þætti sem lúta að eigin umsjá, leik og tómstundaiðju, þátttöku í skólastarfi, skynjun og hreyfingum auk handbeitingar og fínhreyfivinnu.
Adolescent/Adult Sensory Profile, AASP
Staðalbundinn sjálfsmatslisti fyrir aldurshópinn 11-65 ára eða eldri. Samanstendur af 60 staðhæfingum sem meta skynjun og skynúrvinnslu sem tengist daglegu lífi. Einstaklingur merkir við tíðni viðbragða við ýmsum daglegum skynhlöðnum atburðum/áreitum. Niðurstöður nýtast til að fá mynd af skynúrvinnslu viðkomandi og þörf fyrir aðlögun viðfangsefna og umhverfis. Matstækið er staðalbundið og viðmið eru bandarísk.
COSA: Child Occupation Self Assesment
COSA er sjálfsmatslisti fyrir börn 8–17 ára og er ætlað að afla upplýsinga um upplifun barna á eigin iðju og hvernig umhverfið hefur áhrif á daglegar athafnir þeirra. Matslistinn gerir börnum kleift að láta í ljós skoðanir sínar á daglegum viðfangsefnum.
Einhverfueinkenni - Matstæki
Autism Diagnostic Observation Schedule, 2. útgáfa
ADOS-2 er staðlað matstæki sem byggir á beinni athugun á hegðun. Það metur tjáskipti, gagnkvæm félagsleg samskipti, áhugamál og hegðun þegar grunur er um röskun á einhverfurófi. Verkefni gera prófanda kleift að athuga hegðun sem skilgreind er sem mikilvæg fyrir greiningu raskana á einhverfurófi. Áherslan er m.a. á leik, samræður, spurningar sem snúa að félagsþroska og tilfinningum og atriði sem lúta að daglegu lífi auk verkefna s.s. að endursegja stutta sögu og búa til sögu úr hlutum. ADOS matstækið er í fjórum einingum (modules) sem hver tekur um 35‐40 mínútur í fyrirlögn. Einungis ein eining er lögð fyrir hvern skjólstæðing og val á einingu til fyrirlagnar fer eftir málfærni og aldri.
Autism Diagnostic Interview
ADI er kerfisbundið viðtal við foreldra eða umsjónaraðila til að greina einhverfu og tekur um 1½-3 klukkustundir. Í viðtalinu er aflað upplýsinga um þroskasögu og einkenni einhverfu, bæði eins og einkenni eru í dag og við 4-5 ára aldur, þegar einkenni einhverfu eru oft mjög skýr. Atriðin ná yfir þrjú einkennasvið einhverfu sem skilgreind eru út frá DSM-IV og ICD-10, en þau eru; félagsleg samskipti; mál og tjáskipti og sérkennileg og áráttukennd hegðun. Viðtalið má nota frá tveggja ára þroskaaldri.
Spurningalisti um félagsleg tjáskipti (æviskeiðs-útgáfa) (SCQ)
SCQ er skimunarlisti sem lagður er fyrir foreldra eða forráðamenn barna eldri en fjögurra ára. Alls eru 40 spurningar sem snúa að einhverfurófseinkennum og svarmöguleikar eru já og nei. Mikilvægt er að listanum sé svarað af þeim sem best þekkir til þroskasögu barnsins og núverandi hegðunar. Niðurstöður eru túlkaðar út frá fjölda stiga og fari stig yfir 15 er það vísbending um mögulega einhverfurófsröskun. Listinn skal lagður fyrir og túlkaður af fagaðila sem hefur góða þekkingu á einhverfurófseinkennum.
Vineland Adaptive Behaviour Scales – Second Edition (VABS-III), Survey Interview Form
VABS-III er hálf staðlað viðtal til að meta aðlögunarfærni barna og unglinga með því að afla upplýsinga frá foreldrum. Aðlögunarfærni nær yfir tiltekna hegðun sem einstaklingur þarf að búa yfir til að eiga samskipti við aðra og leysa ýmis viðfangsefni í daglegu lífi. Við úrvinnslu er tekið mið af aldri barnsins og færni borin saman við frammistöðu jafnaldra. Matstækið skiptist í fjögur megin svið: Boðskipti, Athafnir daglegs lífs, Félagsleg aðlögun. Viðmið eru bandarísk.
CARS2-HF: Childhood Autism Rating Scale, Second Edition, High Functioning Version)
ASSQ: Autism Spectrum Screening Questionnaire
ASSQ listinn metur einkenni sem líkjast einkennum barna með Asperger heilkenni eða annan vanda á einhverfurófi. Á listanum eru 27 atriði. Svarandi tekur afstöðu til þess hvort atriðin eigi við barnið eða ekki og hversu vel þau eigi við á kvarðanum 0, 1 og 2. Gjarnan eru fengin svör foreldra og kennara. Fari stigafjöldi hvers svaranda um og yfir 20 er mögulega um vanda á einhverfurófi að ræða og ef til vill ástæða til að meta nánar. Listinn er ætlaður við mat á börnum frá 6 ára aldri.
Vitsmunaþroski - Matstæki
Greindarpróf Wechslers fyrir börn - fjórða útgáfa (WISC-IVIS)
WISC-IVIS prófið veitir mikilvægar upplýsingar um vitsmunaþroska barna, 6:0 til 16:11 ára. Notuð eru tíu ólík undirpróf, þar sem leysa á ýmis verkefni sem reyna á almenna greind og sértækari þætti. Verkefni eru t.d. tengd orðaforða, röksemdafærslu, minni o.fl. Undirprófin flokkast í fjóra þætti, Málstarf, Skynhugsun, Vinnsluminni og Vinnsluhraða. Fyrir þessa þætti og heildarútkomu fást niðurstöður í mælitölum. Meðalgeta barna er á bilinu 85 til 115 þegar um mælitölur er að ræða en fyrir stök undirpróf er meðal frammistaða á bilinu 7-13. Árangur barna er borinn saman við árangur íslenskra jafnaldra.
Aðrir matskvarðar
Mat á starfshæfni barna (CGAS: Children´s Global Assessment Scale)
Alhliða matskvarði sem fagaðilar nota til að meta skerðingu á almennri starfshæfni barna á aldrinum 4–16 ára. Valin er stigatala á kvarðanum 1-100 sem er talin lýsandi fyrir starfshæfni barns undanfarinn mánuð. Ákveðnar lýsingar á starfshæfni liggja að baki tölunum. Lág tala gefur til kynna meiri skerðingu en há tala.
Hagnýt ráð
Hér er safn upplýsinga og hagnýtra ráðlegginga, undir samheitinu Hagnýt ráð. Ráðin eru t.d. ætluð foreldrum og kennurum barna sem glíma við einkenni ADHD, kvíða eða álíka vanda. Þessi ráðablöð hafa verið tekin saman af fagfólki og byggja öll á vönduðum, viðurkenndum hand- og fræðibókum.
ADHD
- Skilgreiningar á ADHD
- Hegðunareinkenni ADHD
- ADHD og stýrifærni
- ADHD hjá ungum börnum
- Jákvæðir eiginleikar margra með ADHD
- Áhrif ADHD á fjölskylduna
- Áhrif ADHD á skólagöngu og námsárangur
- Það sem börn með ADHD þarfnast frá foreldrum
- Uppeldi með fyrirhyggju - Jákvæður agi og hegðunarstjórnun
- Að fylgja fyrirmælum - Ráð til að bæta eftirtekt og hegðun barna
- Að koma í veg fyrir hegðunarvanda utan heimilis
- Ýmsar leiðir til að veita barni umbun
- Samræmd meðferð fyrir ADHD
- Lyfjameðferð við ADHD
- Lyfjameðferð við ADHD - Ráð fyrir skóla og foreldra
Staðsetning
Forstöðumaður: Linda Kristmundsdóttir
Yfirlæknir: Anna Sigríður Pálsdóttir
Skrifstofustjóri: Álfheiður Sigurðardóttir
Við viljum vita hvað þér finnst um þjónustu okkar. Þú getur sent okkur tölvupóst eða talað beint við starfsfólkið.
Ábendingar um hvað betur má fara hjálpa okkur að gera enn betur.
Mikilvægt er að tilgreina í skýringu að styrkurinn tilheyri GMB.
Með því að merkja við að senda tölvupóst á netfangið gedheilsumidstod.barna@heilsugaeslan.is tryggir viðkomandi að fá senda staðfestingu á móttöku styrks og þakkarbréf.
Czy treść była pomocna?
Tak