Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins starfrækir fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Á kortinu má sjá staðsetningu þeirra.
Samræmd þjónusta er í boði á öllum heilsugæslustöðvunum okkar en á síðum stöðvanna eru upplýsingar um fyrirkomulagið, t.d. þjónustutíma.
Þú getur séð hvaða stöð er þín á Mínum síðum Heilsuveru og í Réttindagátt sjúkratrygginga. Þú getur skráð þig á stöð að eigin vali í Réttindagátt eða á stöðinni sjálfri.