Almennar upplýsingar

icon

Heilsugæslan er opin 8:00 - 16.00



Bókuð móttaka, heilsuvernd og símaráðgjöf
icon

Skyndimóttaka og síðdegisvakt



Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi 8:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00. Síðdegisvakt mánudaga til föstudaga 16:00 - 17:00. Bóka þarf tíma.

COVID-19 bólusetningar í Mjódd

Við bendum á að bólusett er alla virka daga milli klukkan 9 og 15 hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Álfabakka 14a í Mjódd. Ekki þarf að bóka tíma fyrirfram í bólusetningar í Álfabakkanum, aðeins að mæta á opnunartíma.

Hvað viltu gera?

Ráðgjöf

Til að beina erindum strax í réttan farveg er gott að að fá ráðgjöf á netspjalli Heilsuveru áður en mætt er á opna móttöku stöðvarinnar.

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Miðbæ með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Allir eru velkomnir á stöðina

Heilsugæslan Miðbæ þjónar fyrst og fremst íbúum í póstnúmeri 101 vestan Snorrabrautar og norðan Hringbrautar , en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum Réttindagátt sjúkratrygginga.

 

Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar  eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.

 

Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is

Við tökum vel á móti þér

Hvað hentar þér best?

Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.

Hvaða leið hentar þér best?

Læknar stöðvarinnar

Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.

  • Björg Þuríður Magnúsdóttir heimilislæknir
  • Dagur Ólafsson sérnámslæknir í heimilislækningum.
  • Elín Edda Sigurðardóttir læknir
  • Elínborg Bárðardóttir heimilislæknir
  • Heiður Mist Dagsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum - leyfi
  • Hekla Sigurðardóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Guðbjörg Sigurgeirsdóttir heimilislæknir.
  • Hörður Björnsson heimilislæknir / svæðisstjóri
  • Ína Kolbrún Ögmundsdóttir heimilislæknir
  • Máni Fjalarsson heimilislæknir
  • Sigríður Dóra Magnúsdóttir heimilislæknir
  • Sigríður Ýr Jensdóttir heimilislæknir

Við erum á vaktinni

Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga

 

Hægt er að fá símaráðgjöf  hjá  hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 15:00, alla virka daga  í síma 513-5950.

Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.


Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar alla daga frá kl. 8:00 til 22:00 í síma 513-1700 og í netspjalli á heilsuvera.is.


Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi

 

Það er líka hægt að koma í móttökuna milli kl. 8:00 - 12:00 og 12:00 og 15:00.

Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.

 

Bókuð móttaka

 

Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.

Til dæmis fyrir sáraskiptingar, bólusetningar o.fl.

 

Vegna tímabundinnar manneklu er þessar vikurnar ekki boðið upp á lífsstíls- og sykursýkisráðgjöf í móttökunni.

 

Hvað er í gert í opnu móttökunni?

Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.

 

Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.

 

Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.
  

Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi

 

Lestu meira um opna móttöku heilsugæslustöðva

Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna

Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna

Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.

Heilsuvernd og heilsuefling

Leghálsskimun

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.

Skimanir eru á stöðinni fyrir hádegi á miðvikudögum.

Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali. 

 

Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun

Hreyfiseðill

Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.

Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, sálfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.

Þjónusta sálfræðinga

Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.

Hrafnhildur Snæbjörnsdóttir og Ingibjörg Ragna Malmquist sálfræðingar sinna meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga. 

Þorgerður Guðmundsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna

HAM námskeið

Námskeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM) eru í boði fyrir fullorðna skjólstæðinga stöðvarinnar.

Samvinna fyrir þig

Heilsugæslan Miðbæ þjónar einkum íbúum í póstnúmeri 101 vestan Snorrabrautar og norðan Hringbrautaren allir eru velkomnir a stöðina.

Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.

Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.

Um heilsugæslustöðina

magnifier
StarfsmennStarfsheitiSímiNetfang
Aðalbjörg Jóna BjörnsdóttirSkrifstofustjóriÍ leyfi
Aðalbjörg Ósk Angantýsdóttir Skrifstofustjóri513-5950
Ásdís EckardtHjúkrunarfræðingur513-5950
Berglind GuðmundsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5950
Bergrún H. GunnarsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5950
Dagur Ólafssonsérnámslæknir í heimilislækningum513-5950
Dóra Björnsdóttir StephensenLjósmóðir513-5950
Elín Edda SigurðardóttirSérnámslæknir í heimilislækningum513-5950
Elínborg BárðardóttirHeimilislæknir513-5950
Ester BöðvarsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5950
Gísli Gunnar GunnlaugssonSérnámslæknir í heimilislækningum513-6400
Guðbjörg SigurgeirsdóttirHeimilislæknir513-5950
Hafdís ÓlafsdóttirFagstjóri hjúkrunar513-5950
Hallveig SigurðardóttirMóttökuritari513-5950
Heiður Mist DagsdóttirSérnámslæknir í heimilislækningum513-5950
Hekla SigurðardóttirSérnámslæknir í heimilislækningum513-6400
Helga Vala ÁrnadóttirHjúkrunarfræðingur513-5950
Hildur HolgersdóttirLjósmóðir513-5950
Hrafnhildur SnæbjörnsdóttirSálfræðingur513-5950
Hulda Margrét BirkisdóttirHeilsugæsluritari513-5950
Hörður BjörnssonSvæðisstjóri og Fagstjóri lækninga513-5950
Ingibjörg Ragna MalmquistSálfræðingur513-5950
Ína Kolbrún ÖgmundsdóttirHeimilislæknir513-5950
Máni FjalarssonHeimilislæknir513-5950
Olav Emil MyklebustUnglæknir513-5950
Ríkey EggertsdóttirLæknanemi513-5950
Sigríður Dóra MagnúsdóttirHeimilislæknir513-5950
Sigríður Ýr JensdóttirHeimilislæknir513-5950
Sigrún H. Wahlgren DavíðsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5950
Steindór Oddur EllertssonLæknir513-5950
Tómas Atli ÁsgeirssonMóttökuritari513-5950
Þorgerður GuðmundsdóttirSálfræðingur513-5950

Fannst þér efnið hjálplegt?

Rusl-vörn


Af hverju ekki?

Rusl-vörn