Við fylgjumst með heilsu og þroska

Frá fæðingu til skólaaldurs

Ung- og smábarnavernd stendur öllum foreldrum til boða þeim að kostnaðarlausu.

Foreldrum nýfæddra barna er boðið upp á heimavitjanir fyrstu vikurnar og koma síðan í kjölfarið á heilsugæslustöðina með barnið í skoðanir. 

Í heimavitjunum skoðar hjúkrunarfræðingur barnið, metur þroska þess, þyngd og höfuðummál. Foreldrar fá ráðgjöf og fræðslu varðandi umönnun barnsins og eigin líðan.

Þegar barnið er sex vikna gamalt er læknisskoðun á heilsugæslustöð og við þriggja mánaða aldur hefjast bólusetningar.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag ung- og smábarnaverndar færð þú á þinni heilsugæslustöð.

Stuðningur við fjölskylduna

Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.

Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðvum sjá um ung- og smábarnavernd. 
Foreldrum er ávallt velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðinga í ung- og smábarnavernd á milli skipulagðra skoðana.

 

Skoðanir og bólusetningar - frá 1. júlí 2023

Hér má sjá yfirlit yfir skoðanir og bólusetningar í ung- og smábarnavernd eftir mismunandi aldri:

 Aldur

Hver skoðar 

Hvað er gert

<6 vikna Hjúkrunarfræðingur  Heimavitjanir
 6 vikna  Hjúkrunarfr. og læknir Skoðun, þroskamat
 9 vikna Hjúkrunarfræðingur
Heimavitjun eða skoðun á heilsugæslustöð
 3 mánaða Hjúkrunarfr. og læknir Skoðun, þroskamat og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu.
 5 mánaða  Hjúkrunarfræðingur Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu
 6 mánaða  Hjúkrunarfræðingur Skoðun, þroskamat
 8 mánaða Hjúkrunarfræðingur Skoðun
 10 mánaða Hjúkrunarfr. og læknir Skoðun og þroskamat
 12 mánaða Hjúkrunarfræðingur Skoðun, þroskamat og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu og meningókokkum í þriðju sprautu. PEDS Mat foreldra á þroska barna.
 18 mánaða Hjúkrunarfr. og læknir Skoðun, þroskamat og bólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu og
Hlaupabólu í annarri sprautu. PEDS Mat foreldra á þroska barna
  2 1/2 árs Hjúkrunarfræðingur Skoðun, PEDS Mat foreldra á þroska barna, Brigance þroskaskimun og bólusetning gegn hlaupabólu.
  4 ára Hjúkrunarfræðingur Skoðun, sjónpróf, PEDS Mat foreldra á þroska barna, Brigance þroskaskimun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu

 

PEDS mat foreldra á þroska barna

PEDS (Parent´s Evaluation of Developemental Status) er spurningalisti þar sem foreldrar geta lýst áhyggjum sínum varðandi málþroska, heyrn, fín- og grófhreyfingar, hegðun og almenna þroskaframvindu barns síns. 

PEDS er lagt fyrir öll börn í 12 mánaða, 18 mánaða, 2½ árs og 4 ára skoðun. Hægt er þó að nota PEDS frá fæðingu til 8 ára aldurs.

Brigance þroskaskimun

Brigance þroskaskimun felst í því að hjúkrunarfræðingur leggur verkefni fyrir barnið. Skimunin nær til margra þroskaþátta og skiptist í þrjú svið: skólafærni, samskiptafærni og hreyfifærni. Hún mælir fín- og grófhreyfingar, málnotkun, orðaforða og málskilning, forlestrarfærni, magnhugtök og þekkingu á persónulegum högum.

Brigance þroskaskimun er lögð fyrir 2½ árs og 4 ára gömul börn samhliða PEDS-matinu þannig að greina megi raunveruleg frávik með meiri nákvæmni.

Ung- og smábarnavernd fyrirbura

Heilsugæslustöðvar sinna ung- og smábarnavernd fyrirbura sem fædd eru fyrir 32 vikna meðgöngu og/eða með fæðingarþyngd undir 1500 grömm.  

Hjúkrunarfræðingur fyrirbura fer í heimsókn til fjölskyldunnar á Vökudeild Barnaspítala Hringsins og fer í heimavitjun fljótlega eftir útskrift. Fjöldi heimavitjana fer eftir þörfum. Foreldrar eru beðnir um að hafa samband við sína heilsugæslustöð við útskrift barnsins frá Vökudeildinni til að ákveða fyrstu heimavitjun. Í heimavitjunum er fylgst með vexti og þroska barna, foreldrum veittar ráðleggingar og stuðningur.

Fyrsta heimsókn á heilsugæslustöð fer eftir aldri barnsins eftir útskrift og hvenær barnið er í eftirliti hjá nýburalæknum Vökudeildar. Við þriggja mánaða aldur hefjast bólusetningar. Frá þeim tíma kemur barnið reglulega í skoðun og bólusetningar. Gert er ráð fyrir að sum börn þurfi fleiri heimsóknir en önnur. Fylgst verður sérstaklega með vexti, þroska og hegðun barnanna. Skoðanir og bólusetningar eru einstaklingsmiðaðar. Foreldrum er ávallt velkomið að hafa samband við heilsugæslustöðina umfram þessar skipulögðu skoðanir. 

Fannst þér efnið hjálplegt?

Af hverju ekki?