9. Um vefsíðu HH

Þegar þú notar vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) verða til upplýsingar um heimsóknina. HH miðlar þeim upplýsingum ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.

 9.1 Notkun á vafrakökum

Svokallaðar vafrakökur eru notaðar á vefnum til að telja heimsóknir á vefinn. Vafrakökur eru sérstakar skrár sem komið er fyrir á tölvu notanda sem heimsækir viðkomandi vef og geymir upplýsingar um heimsóknina.

Við notum vafrakökur sparlega og með ábyrgum hætti. Upplýsingarnar notum við fyrst og fremst til að bæta notendaupplifun á vefnum. Notendur vefsins geta stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu.

HH notar Siteimprove til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

9.2 SSL skilríki

Vefurinn notast við SSL skilríki þannig að öll samskipti sem send eru milli notanda og vefs eru dulkóðuð sem eykur öryggi gagnaflutningsins. SSL skilríki varna því að utanaðkomandi aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn.

9.3 Hafa samband / Ábending

Á vefnum er hægt að fylla út formið Hafa samband og senda til Skrifstofu HH. Erindin eru áframsend í tölvupósti til þess starfsmanns/starfsmanna sem málið varðar. Afrit af erindum sem berast úr þessum formum eru vistaðar í vefumsjónarkerfi og geymdar að hámarki í 2 mánuði.

9.4 Skráning á námskeið/viðburði

 Upplýsingar sem berast í gegnum bókunarkerfi vefsins, vistast í vefumsjónarkerfi og eru geymdar að hámarki í 2 mánuði eftir námskeið/viðburð. Upplýsingar um greiðslukort vistast ekki í vefumsjónarkerfi.

9.5 Tenglar í aðra vefi

Á vef HH er stundum vísað á vefi annarra stofnana og fyrirtækja. Reglur HH um öryggi notenda gilda ekki á vefum utan hans. HH ber ekki ábyrgð á efnisinnihaldi eða áreiðanleika slíkra vefa.

9.6 Fyrirvari

Þótt leitast sé við að hafa upplýsingar á vef HH réttar og í samræmi við nýjustu stöðu mála er ekki hægt að ábyrgjast að svo sé. Þetta á einnig við um tilvísanir og tengla í efni utan vefsins.

Fannst þér efnið hjálplegt?

Af hverju ekki?