Almennar upplýsingar

icon

Heilsugæslan er opin 8:00 - 17:00



Svarað er í síma 8:00 til 16:00
icon

Bráð erindi



1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.

Mönnun á Heilsugæslunni Efstaleiti

Tímabundið er mönnun lækna og hjúkrunarfræðinga við stöðina í lágmarki. Það þýðir að við þurfum að forgangsraða og getum ekki veitt sömu  þjónustu og venjulega.

 

Þegar við fáum beiðnir um þjónustu vinnur teymi lækna og hjúkrunarfræðinga með stuðningi annarra fagstétta að eins farsælli lausn og hægt er að bjóða miðað við aðstæður. Eins og er getum við ekki boðið skjólstæðingum okkar að hafa sinn eigin  heimilislækni.

Hvað viltu gera?

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Efstaleiti með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Nánari upplýsingar um stöðina.

Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar  eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Hjúkrunarþjónusta, Heilsuvernd, Sálfræðiþjónusta, Annað og Um stöðina.

 

Heilsugæslan Efstaleiti þjónar fyrst og fremst íbúum svæðis sem afmarkast af Miklubraut í norðri, Fossvogi í suðri, Kringlumýrarbraut í vestri og Reykjanesbraut í austri Skráning er í gegnum Réttindagátt sjúkratrygginga.

Við tökum vel á móti þér

Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar. Hvaða leið hentar þér best?

Læknar stöðvarinnar

Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum, almennir læknar og sérnámslæknar.

 

Þetta eru læknarnir í Efstaleiti:

  • Anna Daníelsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Arndís Rós Stefánsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Guðrún Birna Jakobsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Lilja Sigrún Jónsdóttir heimilislæknir
  • Steinar Björnsson heimilislæknir
     
     

Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga

1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 

 

1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.

Smáslys og bráð veikindi

Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi

 

Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.

 

Bókuð móttaka

 

Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.

Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.

 

Lestu meira um opna móttöku heilsugæslustöðva

 

Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna

Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna

Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.

Heilsuvernd og heilsuefling

Leghálsskimun

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.

Skimanir eru á stöðinni fyrir hádegi á föstudögum.

Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali. 

 

Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun

Þjónusta sálfræðinga

 Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.

Sólveig Hlín Kristjánsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga.

Þorgerður Guðmundsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna.

HAM námskeið

Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.

 

HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið. 

 

Nánari upplýsingar

Hreyfiseðill

Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.

Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.

Klínískur lyfjafræðingur

Verkefni lyfjafræðingsins er einkum að fara yfir lyfjalista hjá þeim sem eru á mörgum lyfjum. Markmiðið er að draga úr lyfjatengdum vandamálum. 

 

Heimilislæknar eða hjúkrunarfræðingar vísa til klíníska lyfjafræðingsins. Ef þú heldur að þjónusta lyfjafræðings henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.

 

  • Klíníski lyfjafræðingur stöðvarinnar er Pétur Gunnar Sigurðsson

Samvinna fyrir þig

Heilsugæslan Efstaleiti þjónar einkum íbúum á svæði sem afmarkast af Fossvogi í suðri, Miklubraut í norðri, Kringlumýrarbraut í vestri og Reykjanesbraut í austri, en allir eru velkomnir á stöðina.

Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.

Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.

magnifier
StarfsmennStarfsheitiSímiNetfang
Arna SteinarsdóttirSjúkraþjálfari513-5350
Arndís Rós StefánsdóttirSérnámslæknir í heimilislækningum513-5350
Áslaug Birna ÓlafsdóttirSvæðisstjóri og fagstjóri hjúkrunar513-5350
Ástríður Jóhanna JensdóttirHeilsugæsluritari513-5350
Bergljót ÞórðardóttirHeilsugæsluritari513-5350
Birta Rún SævarsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5350
Dagbjört Hulda GuðbjörnsdóttirSjúkraliði513-5350
Elín Helga Þórarinsdóttir Sérnámslæknir í heimilislækningum513-5350
Elsa Sæný ValgeirsdóttirSjúkraþjálfari513-5350
Guðrún JakobsdóttirSérnámslæknir í heimilislækningum513-5350
Gunnhildur ViðarsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5350
Helga Sól ÓlafsdóttirLeiðtogi félagsráðgjafa513-5350
Hildur GunnarsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5350
Hildur Kolbrún Aalen MagnúsdóttirMóttökuritari513-5350
Ingibjörg Ásta GunnarsdóttirSkrifstofustjóri513-5350
Jóhann Ágúst SigurðssonHeimilislæknir513-5350
Kjartan HelgasonLæknir513-5350
Lilja Sigrún JónsdóttirHeimilislæknir513-5350
Melkorka GunnarsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5350
Pétur Gunnar SigurðssonKlínískur lyfjafræðingur513-5350
Rakel ÓmarsdóttirSjúkraliði513-5350
Sandra BjarnadóttirLjósmóðir513-5350
Sigríður Embla HeiðmarsdóttirMóttökuritari513-5350
Sigrún Þóra ÞorkelsdóttirHjúkrunarnemi513-5350
Sólveig Hlín KristjánsdóttirSálfræðingur513-5350
Sólveig JóhannsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5350
Steinar BjörnssonFagstjóri lækninga513-5350
Þorgerður GuðmundsdóttirSálfræðingur513-5350

Fannst þér efnið hjálplegt?

Rusl-vörn


Af hverju ekki?

Rusl-vörn