Við erum flutt í Þönglabakka 1 og þar erum við á 2. hæð.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað.
Við erum flutt í Þönglabakka 1 og þar erum við á 2. hæð.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað.
Heilsubrú er miðlæg þjónustueining hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar er þjónusta sem styður og bætir við þjónustu heilsugæslustöðva.
Fyrsta skefið er oftast að skrá sig í hópfræðslu. Fjölbreyttir hóptímar og námskeið eru í boði og fólk velur sjálft sína fræðslu.
Framhaldið gæti verið viðtal við fagaðila og /eða meðferð. Í sumum tilvikum þarf tilvísun frá starfsfólki á heilsugæslustöðvum í þessa þjónustu.
Kvenheilsa
Kvenheilsuteymið veitir fræðslu og ráðgjöf en sinnir einnig sjúkdómum og heilsufarsvanda sem eingöngu eru til staðar hjá konum.
Allar konur geta skráð sig í hópfræðslu, sem er fyrsta skrefið. Eftir þátttöku í hóptímum er hægt taka næstu skref varðandi greiningu og meðferð innan eða utan Heilsubrúar. Sjá hóptíma sem eru í boði
Einnig er í boði að fá ráðgjöf um getnaðarvarnir. Þar er mögulegt að fá uppáskrift og uppsetningu getnaðarvarna. Skráning fer fram á mínum síðum á heilsuvera.is.
Andleg líðan
Heilsubrú býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) og kynningartími er fyrsta skrefið. Sjá námskeið sem eru í boði
Sérhæfð mæðravernd
Ljósmæður á heilsugæslustöðvum vísa konum í þjónustuna eftir þörfum.
Einnig eru í boði námskeið sem henta öllum verðandi foreldrum. Sjá námskeið sem eru í boði
Næringarráðgjöf
Heilbrigðisstarfsfólk á heilsugæslustöðvum vísar einstaklingum í viðtöl hjá næringarfræðingi.
Sykursýki 2
Boðið er upp á hópfræðslu um sykursýki 2. Sjá hóptíma sem eru í boði
Heimastöð
Heilsubrú er heimastöð lyfjafræðinga sem veita þjónustu á heilsugæslustöðvum og skólahjúkrunarfræðinga í framhaldsskólum.
Smellið á heiti námskeiðs til að fá nánari upplýsingar og opna skráningarform.
Fannst þér efnið hjálplegt?
Já