Takmarkanir á notkun lyfja við offitu verði endurskoðaðar

Mynd af frétt Takmarkanir á notkun lyfja við offitu verði endurskoðaðar
22.11.2023
Breytingar á greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands á lyfjum sem notuð eru til að meðhöndla offitu og fyrirbyggja alvarlega fylgisjúkdóma offitu leiða til mismununar sjúklinga eftir efnahag og hindra heilbrigðisstarfsfólk í að veita viðeigandi meðferð í baráttu við einn stærsta heilsufarsvanda þjóðarinnar.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins kallar eftir því að breytingar á greiðsluþátttöku á lyfjunum Wegovy og Saxenda, sem notuð eru til að meðhöndla offitu, verði endurskoðaðar án tafar. Sérfræðingar stofnunarinnar eru boðnir og búnir til að koma að vinnu við þá endurskoðun til að tryggja hagsmuni skjólstæðinga heilsugæslunnar.

Meðferð með lyfjunum Wegovy og Saxenda getur gagnast hópi einstaklinga með sjúkdóminn offitu vel en með hertum skilyrðum fyrir greiðsluþátttöku er ljóst að fáir geta nýtt sér meðferð með lyfjunum. Heilsugæslan vekur athygli á því að með því að nýta þessi lyf með réttum hætti þar sem það á við er líklegt að hægt sé að bæta heilsu fjölda einstaklinga og um leið spara samfélaginu háar upphæðir vegna heilbrigðisþjónustu við þessa einstaklinga í framtíðinni.

Með því að takmarka niðurgreiðslu á lyfjunum verulega er efnaminni sjúklingum mismunað enda geta efnameiri sjúklingar eftir sem áður notað lyfin með því að greiða fyrir þau að fullu sjálfir. Slík mismunun gengur beint gegn réttindum sjúklinga. 

Mikilvægt að meðhöndla ævilangt


Þá hindra breytingarnar möguleika heilbrigðisstarfsfólks til að veita bestu mögulegu þjónustu í samræmi við klínískar leiðbeiningar enda lyfin ekki niðurgreidd fyrr en vandinn er löngu orðinn aðkallandi. 

Offita er langvinnur efnaskiptasjúkdómur sem mikilvægt er að meðhöndla ævilangt með réttum aðferðum á mismunandi stigum sjúkdómsins til að draga úr líkum á margvíslegum áhættuþáttum og fylgisjúkdómum.