Upplýsingar

Samhæfingarstöð krabbameinsskimana veitir nánari upplýsingar í síma 513-6700 milli kl. 8:30 og 12:00. Einnig er hægt að senda tölvupóst á krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is.

 

Information - English

Informacje - Polski

Opin hús í leghálsskimun

Konur sem hafa fengið boð geta valið stað og tíma sem hentar best.

Þetta eru tímasetningarnar fyrstu dagana í mars. Nánari upplýsingar má finna í frétt um opnu húsin.

 

Fimmtudagur 14. mars
Heilsugæslan Grafarvogi - kl. 8:30-10:00
Heilsugæslan Fjörður - kl. 9:00-10:00
Heilsugæslan Efra-Breiðholti - kl. 10:00-12:00
Heilsugæslan Hvammi - kl. 10:20-11:00
Heilsugæslan Mosfellsumdæmi - kl. 13:00-13:30 

Föstudagur 15. mars
Heilsugæslan Mjódd - kl. 8:30-10:00
Heilsugæslan Efstaleiti - kl. 11.00-11.30

Mánudagur 18. mars
Heilsugæslan Sólvangi - kl. 8:30-9:50
Heilsugæslan Árbæ - kl. 8:30-10:00

Þriðjudagur 19. mars
Heilsugæslan Glæsibæ - kl. 10:00-11:20
Heilsugæslan Hamraborg - kl. 14:30-15:20 (fellur niður)

Miðvikudagur 20. mars 
Heilsugæslan Mosfellsumdæmi - kl. 13:00-13:30
Heilsugæslan Miðbæ - kl. 14:00-15:00
Heilsugæslan Salahverfi - kl. 14:10-15:10
Heilsugæslan Höfða - kl. 14:30-15:30

Fimmtudagur 21. mars
Heilsugæslan Grafarvogi - kl. 8:30-10:00
Heilsugæslan Efra-Breiðholti - kl. 10:00-12:00
Heilsugæslan Hlíðum - kl. 10:20-11:00
Heilsugæslan Hvammi - kl. 10:20-11:00
Heilsugæslan Garðabæ - kl. 13:30 -14:30 (Þönglabakki 6)

Föstudagur 22. mars
Heilsugæslan Efstaleiti - kl. 11.00-11.30

Mánudagur 25. mars
Heilsugæslan Sólvangi – kl. 8:30-9:50
Heilsugæslan Árbæ - kl. 8:30-10:00

Þriðjudagur 26. mars
Heilsugæslan Hamraborg - kl. 14:30-15:20

Miðvikudagur 27. mars 
Heilsugæslan Salahverfi - kl. 13:00-14:00
Heilsugæslan Miðbæ - kl. 14:00-15:00

 

Panta tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini

Konur, 23 til og með 64 ára, um land allt, sem hafa fengið boðsbréf geta pantað tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini með símtali við þá heilsugæslustöð sem hentar best. 

 

Einnig geta þær konur sem fengið hafa boðsbréf í skimunina og búa á höfuðborgarsvæðinu, bókað sig á Mínum síðum á heilsuvera.is

 

Nánari upplýsingar um skimun fyrir leghálskrabbameini

Við hvetjum allar konur sem hafa fengið boðsbréf að bóka tíma.

Panta tíma í skimun fyrir brjóstakrabbameini

Einkennalausar konur 40 til 74 ára sem hafa fengið boðsbréf í skimun fyrir brjóstakrabbameini geta pantað sér tíma.

 

Tímapantanir fara fram á Brjóstamiðstöð Landspítala í síma 543-9560 milli kl. 8:30-12:00 og 13:00-15:30 alla virka daga. 

 

Einnig er hægt að panta á vef Brjóstamiðstöðvarinnar eða senda fyrirspurn á netfangið brjostaskimun@landspitali.is.

 

Nánari upplýsingar um skimun fyrir brjóstakrabbameini

Hvar er skimað?

Leghálsskimanir eru í boði á heilsugæslustöðvum um land allt.

 

Brjóstamyndatakan fer fram á Brjóstamiðstöð, Eiríksgötu 5 í Reykjavík og á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi.

 

Einnig er skimað fyrir brjóstakrabbameini á nokkrum stöðum á landsbyggðinni á vorin og öðrum stöðum á haustin.

 

Dagskrá skimunar fyrir brjóstakrabbameini á landsbyggðinni

Skimun fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsi er forvörn sem býðst einkennalausum konum. 

Konum með einkenni frá brjóstum og kvenlíffærum er ráðlagt að leita til læknis. 

Boð í skimun

Konum á Íslandi er boðin skimun fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsi í samræmi við skimunarleiðbeiningar Embættis landlæknis.

Konum á aldrinum 40 til 69 ára er boðin skimun fyrir brjóstakrabbameini á tveggja ára fresti og konum á aldrinum 70 til 74 ára á þriggja ára fresti.

Konum er boðin skimun fyrir leghálskrabbameini á þriggja ára fresti á aldursbilinu 23 til 29 ára og á fimm ára fresti á aldursbilinu 30 til 64 ára. 

Afþakka boð í skimun

Ef þú óskar eftir því að fá ekki boð í skimanir þarftu að hringja til Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana (SKS) og fá viðtal við hjúkrunarfræðing. Hægt er að hringja á virkum dögum klukkan milli kl. 8:30 og 12:00 í síma 513-6700.

 

Ef þú ert ekki viss um hvort þú eigir að fara í skimanir, t.d. vegna fyrri aðgerða, ráðleggjum við þér að tala við þinn lækni til að fá upplýsingar og leiðbeiningar. Ef þörf er á er hægt að fá ráðleggingar hjá hjúkrunarfræðingi SKS.

Er komið að skimun hjá þér?

Tólf konur deila sögu sinni á ljósmyndasýningunni Er komið að skimun hjá þér? og hvetja þannig aðrar konur til að taka þátt í þegar boð berst.

Lestu sögurnar þeirra.

Skimun fyrir brjóstakrabbameini

Landspítala hefur verið falin framkvæmd skimana fyrir krabbameini í brjóstum í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri.

 

Í Reykjavík fer brjóstaskimunin fram í Brjóstamiðstöð, sem er á 3. hæð á Eiríksgötu 5. 

 

Á Akureyri er þjónustan staðsett á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi, inngangur C.

Panta tíma í skimun fyrir brjóstakrabbameini

Einkennalausar konur 40 til 74 ára sem hafa fengið boðsbréf í skimun fyrir brjóstakrabbameini geta pantað sér tíma.

 

Tímapantanir fara fram á Brjóstamiðstöð Landspítala í síma 543-9560 milli kl. 8:30-12:00 og 13:00-15:30 alla virka daga. 

 

Einnig er hægt að panta á vef Brjóstamiðstöðvarinnar eða senda fyrirspurn á netfangið brjostaskimun@landspitali.is.

 

Núna er einkennalausum konum á aldrinum 40 - 69 ára boðin skimun fyrir brjóstakrabbameini á tveggja ára fresti og konum á aldrinum 70-74 ára á þriggja ára fresti.

Viltu vita meira?

Myndband um brjóstaskimun á Eiríksstöðum

Lestu meira í nýjum bæklingi frá Embætti landlæknis

Lestu meira um skimanir fyrir brjóstakrabbameini á heilsuvera.is

Skimun á landsbyggðinni

Vorið 2024 verður skimað fyrir brjóstakrabbameini á þessum stöðum, með fyrirvara um breytingar:

  • Blönduós - 2. til 5. apríl
  • Sauðárkrókur - 8.  til 12. apríl
  • Húsavík - 15. til 18. apríl
  • Vestmannaeyjar - 13. til 17. maí 

Haustið 2023 var skimað fyrir brjóstakrabbameini á þessum stöðum: 

  • Búðardalur, Egilsstaðir, Eskifjörður, Grundarfjörður, Hólmavík, Hvolsvöllur, Ísafjörður, Ólafsvík, Patreksfjörður, Selfoss og Stykkishólmur.

Vorið 2023 var skimað á þessum stöðum:

  • Borgarnes, Blönduós, Húsavík, Hvammstangi, Höfn, Sauðárkrókur, Siglufjörður og Vestmannaeyjar

Haustið 2022 var skimað á þessum stöðum:

  • Egilsstaðir, Eskifjörður, Hvolsvöllur, Ísafjörður, Kirkjubæjarklaustur, Selfoss, Vík í Mýrdal, Vopnafjörður og Þórshöfn

Skimun fyrir leghálskrabbameini

Heilsugæslunni hefur verið falin framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi. 


Á  höfuðborgarsvæðinu fer hún fram á öllum 19 heilsugæslustöðvunum. Á landsbyggðinni er skimunin á heilsugæslustöðvunum með sama hætti og undanfarin ár.  


Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar, sem hafa hlotið sérstaka þjálfun, taka leghálssýni á öllum 19 heilsugæslustöðvunum á höfuðborgarsvæðinu með sama hætti og ljósmæður og hjúkrunarfræðingar hafa gert á heilsugæslustöðvum á landsbyggðinni. 


Heilsugæslan, í samvinnu við kvennadeild Landspítala og kvennadeild Sjúkrahússins á Akureyri, sinnir og fylgir eftir konum sem þurfa nánari greiningu og eftirlit vegna ákveðinna frumubreytinga í leghálsi.

Viltu vita meira?

Lestu meira í nýjum bæklingi frá Embætti landlæknis 

Lestu meira um skimanir fyrir leghálskrabbameini á heilsuvera.is

Leghálsskimanir eru á heilsugæslustöðvum.

Panta tíma í skimun

Konur jafnt á höfuðborgarsvæðinu sem landsbyggðinni, sem hafa fengið boðsbréf, geta pantað tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini með símtali við þá heilsugæslustöð sem hentar best. 

 

Einnig geta þær konur sem fengið hafa boðsbréf í skimunina og búa á höfuðborgarsvæðinu, bókað sig á Mínum síðum á heilsuvera.is

 

Við hvetjum allar konur sem hafa fengið boðsbréf eða liðin eru meira en 3 ár frá síðustu skimun að bóka tíma.

 

Miðað er við að konum sé boðin skimun fyrir leghálskrabbameini á þriggja ára fresti á aldursbilinu 23-29 ára og á fimm ára fresti á aldursbilinu 30-64 ára.

Öll sem eru með legháls

Allir þeir einstaklingar sem eru með legháls og hafa stundað kynlíf, óháð kyni og kyni rekkjunauts, ættu að mæta reglulega í skimun samkvæmt skimunarleiðbeiningum landlæknis.

Tímaframboð á höfuðborgarsvæði

Oftast er skimað sama dag í hverri viku á viðkomandi heilsugæslu. Þessir reitir eru dökkir.

Suma daga er skimað aðra eða þriðju hverja viku á viðkomandi heilsugæslu. Þessir reitir eru ljósir.

Besta aðgengið fyrir konur með hreyfihömlun er á Heilsugæslunum Glæsibæ, Hamraborg, Höfða, Kirkjusandi, Mosfellsumdæmi, Seltjarnarnesi og Vesturbæ. Á þessum stöðvum er bæði gott aðgengi inn á stöðina og rúmgóð skoðunarstofa. Nánari upplýsingar má fá hjá viðkomandi heilsugæslu eða hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana.

 

 Heilsugæslan Sími    Mánud.  Þriðjud.  Miðvikud.   Fimmtud.  Föstud.  Skýring
     f.h.  e.h.  f.h.  e.h.  f.h.   e.h.  f.h.  e.h.  f.h.  e.h.            
 Árbæ  513-5200                      
 Efra-Breiðholti  513-5300                      
 Efstaleiti  513-5350                      
 Fjörður  513-5400                       
 Garðabæ  513-5500                      
 Glæsibæ  513-5700                      
 Grafarvogi  513-5600                      
 Hamraborg  513-5800                       
 Hlíðum  513-5900                      Til skiptis
 Hvammi  513-5850                      
 Höfða  591-7000                      
 Kirkjusandi  595-1300                      
 Miðbæ  513-5950                       
 Mjódd  513-6000                       Til skiptis
 Mosfellsumdæmi  513-6050                      Til skiptis
 Salahverfi  590-3900                      
 Seltjarnarnesi  513-6100                      
 Sólvangi  513-6200                       
 Urðarhvarfi  510-6550                      Til skiptis

 

 

 

Skimun fyrir ristilkrabbameini

Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) er falið skipulag og samhæfing  á framkvæmd krabbameinsskimunar á landsvísu, og þar með talið fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi. Umsjón verkefnisins, fyrir hönd HH er í höndum Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana.

 

Unnið er að undirbúningi skimana þar sem áhersla er lögð á samráð við alla aðila sem að þessum málum koma og að nýta þá þekkingu og reynslu sem nú þegar er til staðar. 

Þátttaka í skimun fyrir ristilkrabbameini

Skimunaraðferðir eru tvenns konar, annars vegar sýnataka til að kanna hvort blóð sé í hægðum, svokallað FIT próf, og hins vegar ristilspeglun. Undirbúningur og innleiðing er samkvæmt tillögum Skimunarráðs fyrir krabbameinum á Íslandi og Evrópuleiðbeiningum. 

 

Þegar framkvæmd hefst er áætlað að byrja á því að skima aldurshóp 60-69 ára og einstaklinga á 51. aldursári.  Þegar innleiðingu er lokið og skimun komin í fullan gang er áætlað að einstaklingum á aldrinum 50-74 ára verði boðin þátttaka. 

 

Byrjunardagsetning og allar nánari upplýsingar verða kynntar betur þegar nær dregur að framkvæmd hefjist. 

Um stöðina

Samhæfingarstöð krabbameinsskimana er til húsa í Miðhrauni 4, 210 Garðabæ.

 

Brjóstamyndatakan fer fram að Eiríksgötu 5 í Reykjavík og á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi. Leghálsskimanir eru á heilsugæslustöðvum um land allt.

magnifier
StarfsmennStarfsheitiSímiNetfang
Aníta Kristjana ElínardóttirHjúkrunarfræðingur513-6700
Ágúst Ingi ÁgústssonYfirlæknir513-6700
Eydís BenediktsdóttirHeilsugæsluritari513-6700
Eydís Sylvía EinarsdóttirSérfræðingur513-6700
Guðbjörg S. HaraldsdóttirHeilsugæsluritari513-6700
Guðrún Áslaug EinarsdóttirVerkefnastjóri ristilskimana513-6705
Guðrún Fjeldsted JóhannesdóttirHeilsugæsluritari513-6700
Hrafnhildur GrímsdóttirVerkefnastjóri513-6700
Pálína ValdimarsdóttirMóttökuritari513-6700

Fannst þér efnið hjálplegt?

Rusl-vörn


Af hverju ekki?

Rusl-vörn