Almennar upplýsingar

icon

Heilsugæslan er opin 8:00 - 17:00



Svarað er í sima 8:00 til 16:00
icon

Bráð erindi



1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.

Viltu skrá þig hjá okkur?

Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Fjörð?

Hvað viltu gera

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Fjarðar með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Allir eru velkomnir á stöðina

Heilsugæslan Fjörður þjónar fyrst og fremst íbúum Hafnarfjarðar, en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum Réttindagátt sjúkratrygginga.

 

Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar  eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um  stöðina.

 

Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is

Við tökum vel á móti þér

Hvað hentar þér best?

Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.

Hvaða leið hentar þér best?

Læknar stöðvarinnar

Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.

  • Elín Fanney Hjaltalín heimilislæknir
  • Guðrún Inga Benediktsdóttir heimilislæknir - í leyfi
  • Guðrún Jóhanna Georgsdóttir heimilislæknir
  • Guðrún Gunnarsdóttir heimilislæknir
  • Jörundur Kristinsson heimilislæknir
  • Ólafur Sveinbjörnsson heimilislæknir
  • Sandra Ásgeirsdóttir heimilislæknir
  • Þóra Elísabet Kristjánsdóttir heimilislæknir

Við erum á vaktinni allan daginn

Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga

 

Hægt er að fá símaráðgjöf  hjá  hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga  í síma 513-5400.

Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.

 

Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar alla daga frá kl. 8:00 til 22:00 í síma 513-1700 og í netspjalli á heilsuvera.is.

 

Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi

 

Það er líka hægt að koma í móttökuna á dagvinnutíma.

Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.

 

Bókuð móttaka

 

Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.

Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.

 

Hvað er í gert í opnu móttökunni?

Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.

 

Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.

 

Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.

 

Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
 

Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi

 

Lestu meira um opna móttöku heilsugæslustöðva

Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna

Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna

Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.

Heilsuvernd og heilsuefling

Leghálsskimun

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.

Skimanir eru á stöðinni fyrir hádegi á miðvikudögum og fyrir hádegi á fimmtudögum.

Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali. 

 

Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun

Hreyfiseðill

Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.

Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.

Þjónusta sálfræðinga

Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.

Ingibjörg Markúsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga. 

Sólveig María Ólafsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna.

HAM námskeið

Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.

 

HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið. 

 

Nánari upplýsingar

Samvinna fyrir þig

Heilsugæslan Fjörður þjónar einkum íbúum Hafnarfjarðar en allir eru velkomnir á stöðina.

Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.

Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.

Um heilsugæslustöðina

magnifier
StarfsmennStarfsheitiSímiNetfang
Andrea ÁsbjörnsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5400
Áslaug Heiða PálsdóttirBarnalæknir513-5400
Berglind Anna Magnúsdóttir Sérnámslæknir í heimilislækningum513-5400
Brynja BaldursdóttirMóttökuritari513-5400
Elín Fanney HjaltalínHeimilislæknir513-5400
Gerða J. ViggósdóttirMóttökuritari513-5400
Guðrún GunnarsdóttirSvæðisstjóri og Fagstjóri lækninga513-5400
Guðrún Inga BenediktsdóttirHeimilislæknirÍ leyfi
Guðrún Jóhanna GeorgsdóttirHeimilislæknir513-5400
Guðrún ÆgisdóttirSkrifstofustjóri513-5400
Herdís Lína HalldórsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5400
Hrafnhildur HelgadóttirHjúkrunarfræðingur Í leyfi
Hulda Kristín GuðmundsdóttirHjúkrunarfræðingurÍ leyfi
Ilmur Dögg NíelsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5400
Indriði Einar ReynissonLæknir513-5400
Ingibjörg MarkúsdóttirSálfræðingur513-5400
Ingunn BjarnadóttirHeilsugæsluritari513-5400
Jenný Kamilla KnútsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5400
Jörundur KristinssonHeimilislæknir513-5400
María HjaltadóttirHjúkrunarfræðingur513-5400
Nína Björg MagnúsdóttirHjúkrunarfræðingur513-6320
Ólafur SveinbjörnssonHeimilislæknir513-5400
Sandra ÁsgeirsdóttirHeimilislæknir513-5400
Sólveig María ÓlafsdóttirSálfræðingur513-5400
Stefanía G. ÁmundadóttirHeilsugæsluritari513-5400
Steinunn JóhannsdóttirLjósmóðir513-5400
Svanhildur Lísa LeifsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5400
Telma SigurgeirsdóttirSálfræðingurÍ leyfi
Thelma B. ÁrnadóttirFagstjóri hjúkrunar513-5400
Thelma MagnúsdóttirMóttökuritari513-5400
Tinna BjarnadóttirHjúkrunarfræðingur513-5400
Valdís MagnúsdóttirUnglæknir513-5400
Vilborg HafsteinsdóttirHjúkrunarfræðingur513-5400
Þórdís Björg KristjánsdóttirLjósmóðir513-5400

Fannst þér efnið hjálplegt?

Rusl-vörn


Af hverju ekki?

Rusl-vörn