Hreyfing hefur áhrif á heilsu og líðan

Meðferð við sjúkdómum

Hreyfiseðillinn er meðferðarúrræði við sjúkdómum eða einkennum þeirra sjúkdóma sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.

Teymi heilbrigðisstarfsmanna og/eða læknar meta einkenni og ástand einstaklings, sem er þá vísað til sjúkraþjálfara á heilsugæslustöðinni..

Við komu til sjúkraþjálfarans er:

  • Farið í gegnum heilsufarssögu og sjúkdómseinkenni, hreyfivenjur og áhugahvöt einstaklings 
  • Möguleikar og geta til hreyfingar ræddir og metnir í sameiningu 
  • Sett eru fram markmið og útbúin hreyfiáætlun, gjarnan til þriggja eða sex mánaða. Hreyfiáætlunin byggir á áhugahvöt og getu ásamt ráðleggingum um magn og ákefð ráðlagðrar hreyfingar sem meðferð við sjúkdómi viðkomandi einstaklings.

Aðhald og hvatning

Einstaklingurinn skráir hreyfingu sína rafrænt og sjúkraþjálfari fylgist með framvindu og gangi mála, veitir aðhald og hvatingu með símtölum og tölvupóstum

Við lok hreyfiseðilstímabils fær læknir / teymi greinagerð frá sjúkraþjálfara og þegar einstaklingur mætir næst til læknis / teymis er árangur meðferðarinnar meðal annars metinn út frá ýmsum heilsufarsmælingum. Hreyfiseðilstímabil getur varað í allt að eitt ár.

Pantaðu tíma hjá heimilislækninum þínum ef þú heldur að hreyfiseðill gæti gagnast þér. 

Á síðu heilsugæslustöðvarinnar þinnar eru upplýsingar um sjúkraþjálfarann.

Fannst þér efnið hjálplegt?

Af hverju ekki?