HAM við streitu

Námskeiðið

Hugræn atferlismeðferð (HAM) er árangursrík leið til að takast á við ýmsan vanda, þar á meðal vanda tengdum óhóflegri streitu.

Streituviðbragðið er eðlilegt og mikilvægt viðbragð til að takast á við krefjandi lífsverkefni. Streita getur orðið óhófleg og langvarandi streita veldur getur valdið ýmsum líkamlegum og tilfinningalegum einkennum sem geta verið truflandi og valdið töluverðri vanlíðan.

Á námskeiðinu verður fjallað streituviðbragðið og farið yfir bjargráð til þess að takast á við streitu á áhrifaríkan hátt. Í tímunum verða gerðar æfingar til þess að aðstoða þig við að fá betri innsýn í þína streitu og til að auka streituþol þitt.

Meðferðin er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri, hún felur í sér fræðslu, umræður og heimaverkefni. 

Umsjón

Námskeiðið er haldið á vegum Heilsubrúar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Umsjónarmaður námskeiðsins er Guðrún Ágústa Eyjólfsdóttir sálfræðingur.

Leiðbeinendur námskeiðsins eru Sigrún Þóra Sveinsdóttir, sálfræðingur, og meistaranemar í klínískri sálfræði undir handleiðslu Sigrúnar Þóru og Guðrúnar Ágústu.

Fyrirkomulag

Hóptímarnir fara fram Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð. (Það er sami inngangur og fyrir Læknasetrið, Gáski sjúkraþjálfun og Tannlæknar Mjódd).  

Það eru að hámarki 15 einstaklingar í hverjum hópi sem hittist einu sinni í viku í 5 vikur, tvo tíma í senn.

Þau sem hafa áhuga á námskeiðinu byrja á því að mæta í kynningartíma þar sem sagt er frá þeim meðferðarúrræðum sem boðið er upp á hjá Heilsubrú.

Þau sem ákveða að taka þátt í námskeiðinu greiða 16.000 kr. fyrir námskeiðið.

Meðferðin er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri.

Skráning

Þau sem vilja taka þátt byrja á að skrá sig í stuttan kynningartíma um HAM námskeiðin sem eru í boði hjá  Heilsubrú. 

Greitt er 500 kr. þátttökugjald fyrir kynningartímann. 

Hafið samband á heilsubru@heilsugaeslan.is ef staðfestingarpóstur berst ekki og ef forföll verða.