Rafræn vöktun

Öryggismyndavélar

Öryggismyndavélar eru við innganga, á göngum og í móttökum starfsstöðva  Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Auk þess eru myndavélar á nokkrum stöðum utanhúss, s.s. við bílastæði.  

Rafræn vöktun er mikilvæg til að tryggja yfirsýn á starfsstöðvum ef upp koma vandamál sem snúa að öryggi og heilsu starfsmanna og/eða skjólstæðinga HH. Rafræn vöktun er jafnframt hluti af þeirri viðleitni að verja eigur HH, starfsmanna  og skjólstæðinga og að bæta öryggi á starfsstöðum HH almennt.

Vöktunin fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna HH í tengslum við eigna- og öryggisvörslu, sbr. 6. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018 og f-lið 1. mgr. 6. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679. Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins.

Við notkun öryggismyndavéla verður að fylgja reglum nr. 50/2023 um rafræna vöktun og í 6. gr. þeirra eru upplýsingar um réttindi einstaklinga. Engum gögnum er safnað um einstaklinga og engin gögn eru geymd lengur en í þrjátíu daga nema sérstök rök séu færð fyrir því.

Á vef persónuverndar má finna svör við algengum spurningum um öryggismyndavélar og reglur sem um þær gilda.

Einnig er hægt að senda fyrirspurn á personuverndarfulltui@heilsugaeslan.is  

Öryggismyndavélar á vegum HH eru utanhúss á þessum stöðum:

  • Geðheilsuteymi suður
  • Heilsugæslan Efra-Breiðholti
  • Heilsugæslan Efstaleiti
  • Heilsugæslan Hlíðum


Electronic surveillance - English
Monitoring elektroniczny - Polski