Uppeldi sem virkar - leiðbeinendanámskeið fyrir leikskóla

Leiðbeinendanámskeiðið fyrir leikskóla er viðbótarnámskeið fyrir þá sem vilja gerast leiðbeinendur á Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar fyrir leikskóla. 

Þátttakendur þurfa áður að hafa setið Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeiðið.

Leiðbeinendanámskeiðið fyrir leikskóla er stutt viðbótarnámskeið fyrir þá sem vilja gerast leiðbeinendur á Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar fyrir leikskóla. Innihald þeirra námskeiða byggir á sama grunni og foreldranámskeiðin en efnið hefur verið lagað sérstaklega að þörfum og aðstæðum starfsfólks leikskóla. 

Hagnýtar upplýsingar um námskeiðið

Þátttakendur: Námskeiðið stendur til boða fagfólki með menntun á uppeldis- eða heilbrigðissviði sem starfar við uppeldi barna og/eða við ráðgjöf og fræðslu um uppeldi til foreldra eða starfsfólks og sem áður hafa setið Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeið.

  • Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 15.
  • Tímasetning næsta námskeið hefur ekki verið ákveðin
  • Staður: Þroska- og hegðunarstöð, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík,
  • Þátttökugjald:  7.500 kr. árið 2019. Öll námskeiðs- og kennslugögn auk kaffiveitinga eru innifalin.
  • Leiðbeinandi: Lone Jensen, uppeldisráðgjafi.

Skráning á námskeiðin

Nánari upplýsingar um námskeiðin má fá á Þroska og hegðunarstöð í tölvupósti; throski@heilsugaeslan.is.

Nánar um námskeiðið

Hönnun námskeiðanna Uppeldi sem virkar - Færni til framtíðar var liður í sérstöku átaksverkefni á Miðstöð heilsuverndar barna stutt af Áfengis- og vímuvarnaráði, Fjölskylduráði, Félagsmálaráði Kópavogs, Forvarnanefnd Reykjavíkur, Landlæknisembættinu,  Menntamálaráðuneytinu o.fl.

Hluti verkefnisins var þýðing og útgáfa bókarinnar: Uppeldisbókin - Að byggja upp færni til framtíðar sem námskeiðin byggja að miklu leyti á. Aðalhöfundur námskeiðanna er Dr. Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur