Á þessu upplýsingaspjaldi eru skýrar myndrænar leiðbeiningar um hvað má og má ekki gera meðan COVID-19 faraldurinn gengur yfir.
Það er svo mikilvægt að allir séu með reglurnar á hreinu og fari eftir þeim til fækka smitum.
Þarna er sett fram með einföldum hætti hvað má gera eftir því hvaða hópi viðkomandi tilheyrir. Hóparnir eru fjórir - þau sem eru í sóttkví, í einangrun, 60+eða í áhættuhópi eða frísk.
Spjöldin eru á sex tungumálum auk íslensku. Þau eru pdf-skjöl sem henta vel til útprentunar.
- Leiðbeiningaspjald á íslensku
- Leiðbeiningaspjald á ensku
- Leiðbeiningaspjald á litháísku
- Leiðbeiningaspjald á pólsku
- Leiðbeiningaspjald á rússnesku
- Leiðbeiningaspjald á spænsku
- Leiðbeiningaspjald á taílensku
Spjaldið byggir á leiðbeiningum sem birtust í Aftonbladet en eru þýddar og staðfærðar.
Á síðunni COVID-19 hér á vefnum eru upplýsingar um breytta þjónustu heilsugæslunnar, leiðir að ráðgjöf hjúkrunarfræðinga og fréttasafn með nánari útskýringum.