Hjúkrunarfræðingar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru í verkfalli sem hófst á miðnætti 27. maí.
Það hefur mikil áhrif á starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á hverri heilsugæslustöð er einungis yfirhjúkrunarfræðingur við störf.
Starfsemi mæðraverndar og ung- og smábarnaverndar er verulega skert eða fellur alveg niður. Heilsuvernd skólabarna og bókaðar hjúkrunarmóttökur falla alveg niður.
Hjúkrunarvakt, sem er venjulega opin þjónusta, sinnir nú eingöngu lífshamlandi erindum.
Reynt verður að fá undanþágu fyrir starfandi hjúkrunarfræðinga í heimahjúkrun til að hún raskist sem minnst en ekki verður tekið við neinum nýjum beiðnum á meðan á verkfalli stendur.