Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga
Hægt er að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga í síma 513-6000.
Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.
Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar alla daga frá kl. 8:00 til 22:00 í síma 513-1700 og í netspjalli á heilsuvera.is.
Opin móttaka
Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi. Hægt er að koma í móttökuna á dagvinnutíma.
Öllum erindum sem koma í móttökuna er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki. Á móttökunni starfa hjúkrunarfræðingar og læknar.
Lestu meira um opna móttöku í Heilsugæslunni Mjódd
Bókuð móttaka
Hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, saumatökur og smáaðgerðir. Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi, blóðsykri, heyrn og sjón.
Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl.