Almennar upplýsingar

icon

Heilsugæslan er opin 8:00 - 17:00



Svarað er í sima 8:00 til 16:00
icon

Bráð erindi



1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.

Viltu skrá þig hjá okkur?

Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Glæsibæ?

Hvað viltu gera?

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Glæsibæ með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Allir eru velkomnir á stöðina

Heilsugæslan Glæsibæ þjónar fyrst og fremst íbúum Voga- og Heimahverfis, en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum Réttindagátt sjúkratrygginga.

 

Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar  eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.

 

Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is

Við tökum vel á móti þér

Hvað hentar þér best?

Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.

Hvaða leið hentar þér best?

Læknar stöðvarinnar

Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.

  • Árni Arnarson sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Björn Gunnlaugsson heimilislæknir   
  • Halldór Jónsson heimilislæknir
  • Hjördís Elva Valdimarsdóttir heimilislæknir   
  • Hrafnhildur Einarsdóttir heimilislæknir
  • Marta Lárusdóttir heimilislæknir
  • Rakel Ingólfsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Þórunn Jónsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Þóra Soffía Guðmundsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum

Við erum á vaktinni allan daginn

Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga

 

Hægt er að fá símaráðgjöf  hjá  hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga  í síma 513-5700.

Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.

 

Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar alla daga frá kl. 8:00 til 22:00 í síma 513-1700 og í netspjalli á heilsuvera.is.

 

Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi

 

Það er líka hægt að koma í móttökuna á dagvinnutíma.

Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.

 

Bókuð móttaka

 

Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.

Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.

 

Hvað er í gert í opnu móttökunni?

Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.

 

Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.

 

Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.

 

Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
 

Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi

 

Lestu meira um opna móttöku heilsugæslustöðva

Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna

Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna

Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.

Heilsuvernd og heilsuefling

Leghálsskimun

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.

Skimanir eru á stöðinni eftir hádegi á þriðjudögum.

Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali. 

 

Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun

Hreyfiseðill

Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.

Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.

Þjónusta sálfræðinga

Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.

 

 Ingibjörg Ragna Malmquist sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga. Helga Maren Hauksdóttir er í leyfi.

Erna Björk Einarsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna. 

HAM námskeið

Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.

 

HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið. 

 

Nánari upplýsingar

Samvinna fyrir þig

Heilsugæslan Glæsibæ þjónar einkum íbúum Voga og Heimahverfis en allir eru velkomnir a stöðina.

Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.

Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.

Um heilsugæslustöðina

magnifier
PersonelPersonelTelefonEmail
Alexandra Olga D. Arnarsdóttir513-5700
Árni Arnarsson513-5700
Ásta Valgerður Guðmundsdóttir513-5700
Ástþóra Kristinsdóttir513-5600
Björn Gunnlaugsson513-5700
Bryndís Þorkelsdóttir513-5700
Danuta Mamczura513-5700
Elísabet H. Stefánsdóttir513-5700
Elísabet Lúðvíksdóttir513-5700
Eydís Benediktsdóttir513-5700
Gróa Sigurðardóttir513-5700
Guðrún Erla Sigfúsdóttir513-6100
Halldór Jónsson513-5700
Helga Maren Hauksdóttir513-5700
Hjördís Elva Valdimarsdóttir513-5700
Hrafnhildur Einarsdóttir513-5700
Ingibjörg Ósk Guðmundsdóttir513-5700
Jóhanna Eiríksdóttir513-5700
Karen Ósk Óskarsdóttir513-5700
María Sveinsdóttir513-5700
Marta Lárusdóttir513-5700
Mínerva Jónsdóttir513-5700
Ragnheiður Bachmann513-5700
Rakel Ingólfsdóttir513-5700
Sigríður Ólafía Gísladóttir513-5700
Sigrún Inga Gunnarsdóttir513-5700
Sólrún Inga Halldórsdóttir513-5700
Teresa Tinna Ríkharðsdóttir513-5700
Þóra Soffía Guðmundsdóttir513-5700
Þórunn Jónsdóttir513-5700

Czy treść była pomocna?

Tak

Rusl-vörn


Dlaczego nie?