Síðdegisvaktin á Heilsugæslunni Glæsibæ verður lokuð í sumar frá og með 18. júní.
Almennar upplýsingar
Contact us
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Síðdegisvakt lokuð í sumar
Viltu skrá þig hjá okkur?
Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Glæsibæ?
Hvað viltu gera?
Þú getur séð hvaða stöð er þín á Mínum síðum Heilsuveru og í Réttindagátt sjúkratrygginga.
Þú getur skráð þig á heilsugæslustöð að eigin vali í Réttindagátt eða á stöðinni sjálfri.
Öllum er velkomið á skrá sig á stöðina og við tökum vel á móti þér.
Lyfjasíminn er 513-5702 á milli kl. 10:30 og 12:00 alla virka daga.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðum Heilsuveru.
Þú getur bókað tíma í heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Ef þú getur ekki beðið eru samdægurstímar, skyndimóttaka eða síðdegisvakt möguleiki.
Það er alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði
Rannsóknir eru frá kl. 8:00 til 9:30 á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum og frá kl. 13:00 til 14:30 á miðvikudögum.
Panta þarf tíma í blóðrannsókn í síma 513-5700 og alltaf þarf beiðni að liggja fyrir.
Þvagsýni þurfa að berast fyrir kl. 11:30. Best er að koma með fyrsta morgunþvag (miðbunuþvag) nema annað hafi verið tekið fram.
Örugg gagnaskil
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Glæsibæ með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Allir eru velkomnir á stöðina
Heilsugæslan Glæsibæ þjónar fyrst og fremst íbúum Voga- og Heimahverfis, en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum mínar síður á island.is.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Hvað hentar þér best?
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvaða leið hentar þér best?
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Síðdegisvaktin er lokuð í sumar frá og með 18. júní 2024.
Vaktin er ætluð fyrir bráð erindi og aðeins eitt vandamál í hverju viðtali.
Afgreiðsla á síðdegisvakt verður ekki sú sama og í fyrirfram pöntuðum tíma að degi til. Við biðjum skjólstæðinga okkar að taka tillit til þess. Komugjöld eru hærri eftir kl. 16:00
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum í mínar síður í Heilsuveru. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-5700.
Símaviðtöl eru pöntuð í síma 513-5700 alla virka daga.
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Lyfjaendurnýjun er í síma 513-5702 milli kl. 10:30 og 12:00 alla virka daga. Ritarar taka við beiðnum um endurnýjun.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu þarf að tilkynna veikindin á heilsugæslustöðina sem fyrst eftir að veikindi hefjast.
Í stuttum veikindum er tekið á móti beiðnum um veikindavottorð vegna skóla í síma: 513-5700.
Hafa skal beint samband við lækni vegna lengri veikinda og annarra vottorða s.s. vinnuveitendavottorða.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Læknar stöðvarinnar
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.
- Árni Arnarson sérnámslæknir í heimilislækningum
- Björn Gunnlaugsson heimilislæknir
- Halldór Jónsson heimilislæknir
- Hjördís Elva Valdimarsdóttir heimilislæknir
- Hrafnhildur Einarsdóttir heimilislæknir
- Marta Lárusdóttir heimilislæknir
- Rakel Ingólfsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
- Þóra Soffía Guðmundsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
- Þórunn Jónsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
Við erum á vaktinni allan daginn
Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga
Hægt er að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga í síma 513-5700.
Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17.
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
Það er líka hægt að koma í móttökuna á dagvinnutíma.
Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.
Bókuð móttaka
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.
Hvað er í gert í opnu móttökunni?
Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.
Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.
Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.
Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi
Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Heilsuvernd og heilsuefling
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
- Vogaskóli
- Langholtsskóli
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífsstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Leghálsskimun
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni eftir hádegi á þriðjudögum.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
- Sjúkraþjálfari stöðvarinnar er Ásta Valgerður Guðmundsdóttir
- Lestu meira um hreyfiseðla
Þjónusta sálfræðinga
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
HAM námskeið
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið.
Nánari upplýsingar
Samvinna fyrir þig
Heilsugæslan Glæsibæ þjónar einkum íbúum Voga og Heimahverfis en allir eru velkomnir a stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Um heilsugæslustöðina
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf
- Marta Lárusdóttir svæðisstjóri og fagstjóri lækninga
- Ingibjörg Ósk Guðmundsdóttir fagstjóri hjúkrunar
HHStaff | Jobtitle | Phone | |
---|---|---|---|
Alexandra Olga D. Arnarsdóttir | 513-5700 | ||
Árni Arnarsson | 513-5700 | ||
Ásta Valgerður Guðmundsdóttir | Physiotherapist | 513-5700 | |
Ástþóra Kristinsdóttir | 513-5600 | ||
Birta Rún Ingimundardóttir | 513-5700 | ||
Björn Gunnlaugsson | General practitioner | 513-5700 | |
Bryndís Þorkelsdóttir | 513-5700 | ||
Danuta Mamczura | 513-5700 | ||
Elísabet H. Stefánsdóttir | Registered nurse | 513-5700 | |
Elísabet Lúðvíksdóttir | Registered nurse | 513-5700 | |
Eydís Benediktsdóttir | 513-5700 | ||
Gróa Sigurðardóttir | 513-5700 | ||
Guðrún Erla Sigfúsdóttir | Registered nurse | 513-6100 | |
Halldór Jónsson | General practitioner | 513-5700 | |
Halldóra Diljá Ragnarsdóttir | 513-5700 | ||
Helga Maren Hauksdóttir | Psychologist | 513-5700 | |
Hjördís Elva Valdimarsdóttir | General practitioner | 513-5700 | |
Hrafnhildur Einarsdóttir | General practitioner | 513-5700 | |
Ingibjörg Ósk Guðmundsdóttir | 513-5700 | ||
Jóhanna Eiríksdóttir | Registered nurse | 513-5700 | |
María Sveinsdóttir | Midwife | 513-5700 | |
Marta Lárusdóttir | 513-5700 | ||
Mínerva Jónsdóttir | 513-5700 | ||
Ragnheiður Bachmann | Midwife | 513-5700 | |
Rakel Ingólfsdóttir | Medical trainee in general practice | 513-5700 | |
Sigríður Ólafía Gísladóttir | 513-5700 | ||
Sigrún Inga Gunnarsdóttir | Registered nurse | 513-5700 | |
Sólrún Inga Halldórsdóttir | Registered nurse | 513-5700 | |
Stefán Broddi Daníelsson | 513-5700 | ||
Teresa Tinna Ríkharðsdóttir | Registered nurse | 513-5700 | |
Þóra Soffía Guðmundsdóttir | 513-5700 | ||
Þórunn Jónsdóttir | 513-5700 |
Did you find the content helpful?
Yes