Verkfall SFR og SLFÍ 15, 16, 19. og 20. október hefur veruleg áhrif á þjónustu heilsugæslustöðva og heimahjúkrunar.
Allar heilsugæslustöðvar verða opnar en þjónustan verður með eftirfarandi hætti meðan verkfall stendur yfir:
- Læknar/aðrir starfsmenn taka á móti bókuðum sjúklingum,
- Lyf fást ekki endurnýjuð símleiðis verkfallsdaga en bent á almenna læknamóttöku og Veruna.
- Móttaka síðdegisvaktar fellur niður
- Símatímar hjá læknum/öðrum starfsmönnum sem fara í gegnum ritara falla niður.
- Engar tímabókanir í gegnum síma.
- Sjúklingum bent á að koma á stöð geti erindið ekki beðið. Hjúkrunarfræðingur/læknir metur hvort erindið sé brýnt og vísar frá ef álagið er mikið.
- Einungis allra brýnustu verkefnum verður sinnt í heimahjúkrun.