Boðið verður upp á sýnatökur vegna Covid-19 í húsnæði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við Suðurlandsbraut 34 yfir páskana þó lokað verði á föstudaginn langa og páskadag.
Opnunartímar á Suðurlandsbrautinni yfir páskana verða eftirfarandi:
Skírdagur 14. apríl: Opið milli klukkan 9 og 12.
Föstudagurinn langi, 15. apríl: Lokað
Laugardagurinn 16. apríl: Opið milli klukkan 9 og 12.
Páskadagur, 17. apríl: Lokað
Annar í páskum, 18. apríl: Opið milli klukkan 9 og 12.
Sumardagurinn fyrsti, 21. apríl: Opið milli klukkan 9 og 12.
Opnunartímar í sýnatökur um páskana
08.04.2022