Elínborg Bárðardóttir heimilislæknir hefur hætt störfum á Heilsugæslunni Miðbæ og hverfur til annara starfa innan Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins.
Starfsfólk stöðvarinnar þakkar Elínborgu fyrir gott og ánægjulegt samstarf.
Skjólstæðingar Elínborgar verða áfram skráð á Heilsugæsluna Miðbæ og eru velkomnir þangað.
Elínborg starfar nú á Þróunarstofu HH sem kennslustjóri sérnáms í heimilislækningum.