Þjónusta um páskana

Mynd af frétt Þjónusta um páskana
08.04.2020

Heilsugæslustöðvarnar okkar eru lokaðar um páskana, frá og með skírdegi, til og með annars  í páskum, 9. til 13. apríl.

Ef um bráð veikindi eru að ræða bendum við á Læknavaktina, Austurveri.

Ráðgjöf er hægt að fá í vaktsíma 1700 og í netspjalli á heilsuvera.is. 

Í neyðartilvikum skal hringja í 112.

Eftir páska eru allar stöðvar opnar og tilbúnar að veita heilbrigðisþjónustu. 

Ekki hika við að leita til okkar á heilsugæslustöðvunum. Við biðjum þig samt um að hringja á undan þér til að við getum stuðlað að öryggi þínu og okkar með viðeigandi smitvörnum.