Heilsugæslustöðvarnar okkar eru lokaðar um páskana, frá og með skírdegi, til og með annars í páskum, 9. til 13. apríl.
Ef um bráð veikindi eru að ræða bendum við á Læknavaktina, Austurveri.
Ráðgjöf er hægt að fá í vaktsíma 1700 og í netspjalli á heilsuvera.is.
Í neyðartilvikum skal hringja í 112.
Eftir páska eru allar stöðvar opnar og tilbúnar að veita heilbrigðisþjónustu.
Ekki hika við að leita til okkar á heilsugæslustöðvunum. Við biðjum þig samt um að hringja á undan þér til að við getum stuðlað að öryggi þínu og okkar með viðeigandi smitvörnum.