Óskar Reykdalsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra lækninga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til fimm ára frá og með 16. maí 2018.
Óskar er sérfræðingur í heimilislækningum og hefur 25 ára starfsreynslu sem slíkur. Hann hefur víðtæka stjórnunarreynslu innan heilsugæslu, var yfirlæknir hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands 1998-2001, framkvæmdastjóri lækninga hjá sömu stofnun 2005-2014 og sat í framkvæmdastjórn LSH sem framkvæmdastjóri Rannsóknarsviðs 2014-2016.
Óskar var svæðisstjóri á Heilsugæslunni Árbæ 2016 til 2017 og hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá október 2017.
Verkefni sem heyra undir framkvæmdastjóra lækninga eru eftirfarandi:
- Stefnumótun og þróun, m.a. á sviði árangurs, gæða, aðgengis og öryggis í þjónustu
- Leiðtogi við framkvæmd stefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
- Innleiðing nýjunga og breytinga, s.s. teymisvinnu og straumlínustjórnunar
- Fagleg samhæfing og eftirlit á sviði lækninga
- Samhæfing, mælingar og mat á starfsemi
- Gerð og efling klínískra leiðbeininga
- Gæðaeftirlit
Óskar er boðinn velkominn til áframhaldandi starfa hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.