Þegar líður á árið eiga margir sjúkratryggðir einstaklingar rétt á afslætti af komugjöldum og rannsóknagjöldum á heilbrigðisstofnunum. Þú getur farið á vefsíðu Sjúkratrygginga Íslands, (farið á sjukra.is og inn á réttindagátt með kennitölu og íslykli) og athugað hvort þú átt rétt á afslætti það sem eftir er ársins. Veist þú hvort þú átt rétt á afslætti?
Eftirtalin gjöld sem greidd hafa verið á árinu eru lögð saman til að ákveða hvort sjúklingurinn á rétt á afslætti á frekari heilbrigðisþjónustu:
- komur á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis
- vitjanir lækna
- komur á slysadeild, göngudeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa,
- komur/endurkomur á göngudeild sjúkrahúss vegna þjónustu annarra en lækna
- komur til sérfræðilækna utan sjúkrahúsa
- komur til sérfræðilækna á göngudeild sjúkrahúsa
- rannsóknagjöld vegna rannsókna á heilsugæslustöðvum og rannsóknastofum
- geisla- og myndgreininga og beinþéttnimælingar
- sérfræðiviðtöl hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Eins og fram kemur á vefsíðu Sjúkratrygginga er mismunandi hvað einstaklingar þurfa að greiða mikið á árinu, eftir aldri og stöðu, áður en afsláttarkortið er gefið út. Um leið og einstaklingar hafa greitt upphæðirnar hér fyrir neðan eiga þeir rétt á afslætti:
Sjúkratryggðir 18-66 ára almennt | 32.300 kr. |
Aldraðir 67 til og með 69 ára sem eru með skertan eða engan ellilífeyri | 25.800 kr. |
Aldraðir 70 ára og eldri | 8.100 kr. |
Aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs | 8.100 kr. |
Aldraðir 60 til og með 69 ára sem eru með óskertan ellilífeyri | 8.100 kr. |
Öryrkjar | 8.100 kr. |
Öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu | 9.800 kr. |
Yfirleitt þarf fólk ekki að hafa áhyggjur því að leggja fram reikninga og óska eftir afsláttarkorti: það gerist sjálfkrafa, vegna þess að flestar heilbrigðisstofnanir senda Sjúkratryggingum upplýsingar um greiðslur fólks. Þó þurfa skjólstæðingar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sem ekki staðgreiða þjónustuna heldur greiða greiðsluseðla í fjármálastofnun eftir á eða greiða innheimtukröfur, að koma kvittunum vegna þessara greiðslna sjálfir til Sjúkratrygginga Íslands.
Á vefsíðu Sjúkratrygginga kemur fram að senda þarf til Sjúkratrygginga kvittanir vegna greiðslna til nokkurra þjónustuaðila: Benedikts Ó. Sveinssonar kvensjúkdómalæknis, Sjúkrahúss Akureyrar, sjúkrastofnana og heilsugæslustöðva á Vesturlandi, Krabbameinsfélags Íslands og Heyrnar og talmeinastöðvarinnar.