Fræðslunámskeið um ADHD verður haldið í samvinnu Þroska- og hegðunarstöðvar, Heilsugæslunnar Efra-Breiðholti og BUGL.
Haldin verða tvö stutt námskeið. Fyrra námskeiðið verður föstudaginn 22. október kl. 13:00-16:15 og það seinna í tengslum við Fræðadaga Heilsugæslunnar 18. nóvember kl. 9:00-12:15.
Bæði námskeiðin verða haldin í húsnæði Þroska- og hegðunarstöðvar (ÞHS) og Þróunarstofu heilsugæslunnar í Þönglabakka 1.
Leitast verður við að fara í efnið á hagnýtan hátt. Farið verður í röskunina, greiningu, meðferð og eftirfylgd. Áhersla verður lögð á eftirfylgd í heilsugæslu.
Námskeiðið er ætlað heilsugæslulæknum. Hámarksfjöldi á hvort námskeið er 20.
Dagskráin
- Um ADHD
Ólafur Ó. Guðmundsson barnageðlæknir - Skimlistar fyrir ADHD
Sálfræðingur frá BUGL og ÞHS - Lyfjameðferð
Ólafur Ó. Guðmundsson - Kaffi
- Frá tilvísun til eftirfylgdar
Ragnheiður Elísdóttir barnalæknir - Eftirfylgd- verklag í heilsugæslu
Þórður G. Ólafsson heimilislæknir - Umræður
Skráning fer fram með tölvupósti eða í síma 585-1350. Síðasti dagur skráningar á fyrra námskeiðið er þriðjudagurinn 19. október og á hið síðara er mánudagurinn 15. nóvember.
Þátttökugjald er 2.500 kr. Hægt er að fá sendan reikning ef þátttökugjaldið greiðist af vinnuveitanda en gefa þarf upp vinnustað, kennitölu vinnuveitanda og heimilisfang.
Einnig er hægt að millifæra á reikning 0336-26-10200, kennitala 521005-0760, skýring greiðslu ÞHS 34.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um námskeiðið sendið tölvupóst til Ragnheiðar Elísdóttur eða hafið samband í síma 585-1350.