Miðvikudaginn 15. febrúar opnaði heilbrigðisráðherra Jón Kristjánsson nýjan vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Þegar heilsugæslustofnanir á höfuðborgarsvæðinu sameinuðust 1. janúar 2006 í eina stofnun, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sbr. reglugerð nr. 608/2005, var gerður nýr vefur sem inniber upplýsingar um þjónustu allra starfseininga innan hinnar nýju stofnunar.
Þessar starfseiningar eru 15 heilsugæslustöðvar í Reykjavík, á Seltjarnarnesi, í Mosfellsbæ, Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, auk starfseminnar á Heilsuverndar-stöðinni, Miðstöð heimahjúkrunar og Geðheilsu eftirfylgd/iðjuþjálfun.
Starfsmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru 678 og þjóna um 180 þús. manns búsettum á höfuðborgarsvæðinu.
Sú nýbreytni er á nýja vefnum, frá þeim eldri, að hægt er að senda skráningarbeiðni rafrænt á heilsugæslustöð, aðgengi að upplýsingum er auðveldað og miðað er við að auka möguleika á rafrænum samskiptum.
Vefurinn er útlitshannaður af Gagarin ehf. og gerður í vefumsýslukerfinu LiSA frá INNN hf.