Samhæfingarstöð krabbameinsskimana veitir nánari upplýsingar í síma 513-6700 milli kl. 8:30 og 12:00. Einnig er hægt að senda tölvupóst á krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is.
Samhæfingarstöð krabbameinsskimana veitir nánari upplýsingar í síma 513-6700 milli kl. 8:30 og 12:00. Einnig er hægt að senda tölvupóst á krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is.
Konur sem hafa fengið boð geta mætt á þá heilsugæslu sem þeim hentar best, óháð búsetu, án þess að bóka tíma áður.
Sjá nánara skipulag opins húss næstu daga hér að neðan:
Við vekjum athygli á síðdegisopnun 15. október 15:00 -16.50 í Sólvangi og í Efra-Breiðholti og 16. október 15:00-17:00 í Grafarvogi.
Fimmtudagur 9. október
Heilsugæslan Fjörður - 8:20-9:20
Heilsugæslan Grafarvogi - 8:30-11:30
Heilsugæslan Árbæ – 14:00-15:30
Heilsugæslan Hlíðum 13:00-13.40
Föstudagur 10. október
Heilsugæslan Efstaleiti - 9:20-11:30
Mánudagur 13. október
Heilsugæslan Hvammi - 8:30-11:00
Heilsugæslan Sólvangi - 9:00-10:00
Þriðjudagur 14. október
Heilsugæslan Hamraborg - 14:30-15:20
Heilsugæslan Glæsibæ - 14:20-14:50
Miðvikudagur 15. október
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ - 11:00-11:30
Heilsugæslan Miðbæ -11:00-12:00
Heilsugæslan Kirkjusandi - 11:30-12:00
Heilsugæslan Höfða - 14:30-15:00
Heilsugæslan Sólvangi - 15:00-16:50
Heilsugæslan Efra-Breiðholti - 15:00-17:00
Fimmtudagur 16. október
Heilsugæslan Grafarvogi - 8:30-11:30
Heilsugæslan Árbæ – 14:00-15:30
Heilsugæslan Hlíðum 8:20-9:00
Heilsugæslan Grafarvogi - 15:00-17:00
Föstudagur 17. október
Heilsugæslan Efstaleiti - 9:20-11:30
Mánudagur 20. október
Heilsugæslan Hvammi - 8:30-11:00
Heilsugæslan Sólvangi - 9:00-10:00
Þriðjudagur 21. október
Heilsugæslan Hamraborg - 14:30-15:20
Heilsugæslan Glæsibæ - 14:20-14:50
Við hvetjum allar konur sem hafa fengið boðsbréf að bóka tíma.
Konur, 23 til og með 64 ára, um land allt, sem hafa fengið boðsbréf geta pantað tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini með símtali við þá heilsugæslustöð sem hentar best.
Einnig geta þær konur sem fengið hafa boðsbréf í skimunina og búa á höfuðborgarsvæðinu, bókað sig á Mínum síðum á heilsuvera.is
Einkennalausar konur 40 til 74 ára sem hafa fengið boðsbréf í skimun fyrir brjóstakrabbameini geta pantað sér tíma.
Tímapantanir fara fram á Brjóstamiðstöð Landspítala í síma 543-9560 milli klukkar 9:00 og 15:30 alla virka daga.
Einnig er hægt að panta á vef Brjóstamiðstöðvarinnar eða senda fyrirspurn á netfangið brjostaskimun@landspitali.is.
Leghálsskimanir eru í boði á heilsugæslustöðvum um land allt.
Brjóstamyndatakan fer fram á Brjóstamiðstöð, Eiríksgötu 5 í Reykjavík og á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi.
Einnig er skimað fyrir brjóstakrabbameini á nokkrum stöðum á landsbyggðinni á vorin og öðrum stöðum á haustin.
Skimun fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsi er forvörn sem býðst einkennalausum konum.
Konum með einkenni í brjóstum er ráðlagt að leita til heilsugæslu til frekara mats.
Konum með einkenni frá kvenlíffærum er ráðlagt að leita til kvensjúkdómalæknis.
Konum á Íslandi er boðin skimun fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsi í samræmi við skimunarleiðbeiningar Embættis landlæknis.
Konum á aldrinum 40 til 69 ára er boðin skimun fyrir brjóstakrabbameini á tveggja ára fresti og konum á aldrinum 70 til 74 ára á þriggja ára fresti.
Konum er boðin skimun fyrir leghálskrabbameini á þriggja ára fresti á aldursbilinu 23 til 29 ára og á fimm ára fresti á aldursbilinu 30 til 64 ára.
Óskir þú eftir því að fá ekki boð í skimanir þarft þú að hafa samband við Samhæfingarstöð krabbameinsskimana (SKS). Hægt er að hafa samband á virkum dögum milli kl 8:30 og 12:00 í síma 513-6700. Einnig er hægt að senda tölvupóst á krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is
Ef þú ert ekki viss um hvort þú eigir að fara í skimanir, t.d. vegna fyrri aðgerða, ráðleggjum við þér að tala við þinn lækni til að fá upplýsingar og leiðbeiningar. Ef þörf er á er hægt að fá ráðleggingar hjá hjúkrunarfræðingi SKS.
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Samhæfingarstöðvarinnar með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Nýjustu fréttir af starfi Samhæfingarstöðvarinnar má sjá hér fyrir neðan en eldri tíðindi er að finna í fréttasafni.
Landspítala hefur verið falin framkvæmd skimana fyrir krabbameini í brjóstum í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri.
Í Reykjavík fer brjóstaskimunin fram í Brjóstamiðstöð, sem er á 3. hæð á Eiríksgötu 5.
Á Akureyri er þjónustan staðsett á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi, inngangur C.
Einkennalausar konur 40 til 74 ára sem hafa fengið boðsbréf í skimun fyrir brjóstakrabbameini geta pantað sér tíma.
Tímapantanir fyrir allt landið fara fram á Brjóstamiðstöð Landspítala í síma 543-9560, alla virka daga milli kl 9:00 og 15:30
Einnig er hægt að panta á vef Brjóstamiðstöðvarinnar eða senda fyrirspurn á netfangið brjostaskimun@landspitali.is.
Núna er einkennalausum konum á aldrinum 40 - 69 ára boðin skimun fyrir brjóstakrabbameini á tveggja ára fresti og konum á aldrinum 70-74 ára á þriggja ára fresti.
Konum með einkenni í brjóstum er ráðlagt að leita til heilsugæslu til frekara mats.
Myndband um brjóstaskimun á Eiríksstöðum
Lestu meira í bæklingi frá Embætti landlæknis
Lestu meira um skimanir fyrir brjóstakrabbameini á heilsuvera.is
Haustið 2025 verður skimað fyrir brjóstakrabbameini á þessum stöðum:
Vorið 2025 var skimað fyrir brjóstakrabbameini á þessum stöðum:
Haustið 2024 var skimað fyrir brjóstakrabbameini á þessum stöðum:
Vorið 2024 var skimað fyrir brjóstakrabbameini á þessum stöðum:
Heilsugæslunni hefur verið falin framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi.
Á höfuðborgarsvæðinu fer hún fram á öllum 19 heilsugæslustöðvunum. Á landsbyggðinni er skimunin á heilsugæslustöðvunum með sama hætti og undanfarin ár.
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar, sem hafa hlotið sérstaka þjálfun, taka leghálssýni á öllum 19 heilsugæslustöðvunum á höfuðborgarsvæðinu með sama hætti og ljósmæður og hjúkrunarfræðingar hafa gert á heilsugæslustöðvum á landsbyggðinni.
Heilsugæslan, í samvinnu við kvennadeild Landspítala og kvennadeild Sjúkrahússins á Akureyri, sinnir og fylgir eftir konum sem þurfa nánari greiningu og eftirlit vegna ákveðinna frumubreytinga í leghálsi.
Lestu meira í nýjum bæklingi frá Embætti landlæknis
Lestu meira um skimanir fyrir leghálskrabbameini á heilsuvera.is
Leghálsskimanir eru á heilsugæslustöðvum.
Konur jafnt á höfuðborgarsvæðinu sem landsbyggðinni, sem hafa fengið boðsbréf, geta pantað tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini með símtali við þá heilsugæslustöð sem hentar best.
Einnig geta þær konur sem fengið hafa boðsbréf í skimunina og búa á höfuðborgarsvæðinu, bókað sig á Mínum síðum á heilsuvera.is
Miðað er við að konum sé boðin skimun fyrir leghálskrabbameini á þriggja ára fresti á aldursbilinu 23-29 ára og á fimm ára fresti á aldursbilinu 30-64 ára.
Allir þeir einstaklingar sem eru með legháls og hafa stundað kynlíf, óháð kyni og kyni rekkjunauts, ættu að mæta reglulega í skimun samkvæmt skimunarleiðbeiningum landlæknis.
Mánudagur - fyrir hádegi
Mánudagur - eftir hádegi
Þriðjudagur - fyrir hádegi
Þriðjudagur - eftir hádegi
Miðvikudagur - fyrir hádegi
Miðvikudagur - eftir hádegi
Fimmtudagur - fyrir hádegi
Fimmtudagur - eftir hádegi
Föstudagur - fyrir hádegi
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH)er falið skipulag og samhæfing á framkvæmd krabbameinsskimunar á landsvísu, og þar með talið fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi. Umsjón verkefnisins, fyrir hönd HH, er hjá Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana.
Unnið er að undirbúningi skimana þar sem áhersla er lögð á samráð við alla aðila sem að þessum málum koma og að nýta þá þekkingu og reynslu sem nú þegar er til staðar.
Lestu meira í bæklingi frá Embætti landlæknis
Skimunaraðferðin felst í sjálfsprófi sem greinir blóð í hægðum, svokölluðu FIT-prófi (Fecal Immunochemical Test).
Sýnið er tekið heima fyrir og sent til rannsóknar á Landspítala. Ef blóð greinist, er einstaklingnum boðin ristilspeglun til frekari skoðunar.
Undirbúningur og innleiðing er í samræmi við tillögur Skimunarráðs um krabbameinsskimanir á Íslandi, Evrópskar skimunarleiðbeiningar og fyrirkomulag skimunarinnar í öðrum Evrópulöndum.
Þegar framkvæmd hefst er áætlað að byrja á því að skima aldurshópinn 60-69 ára. Þegar innleiðingu er lokið er áætlað að einstaklingum á aldrinum 50-74 ára verði boðin þátttaka. Áætlað er að innleiðingu ljúki árið 2031.
Samhæfingarstöð krabbameinsskimana er til húsa í Miðhrauni 4, 210 Garðabæ.
Brjóstamyndatakan fer fram að Eiríksgötu 5 í Reykjavík og á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi. Leghálsskimanir eru á heilsugæslustöðvum um land allt.
Við viljum vita hvað þér finnst um þjónustu okkar.
Þú getur sent okkur tölvupóst eða talað beint við starfsfólkið.
Ábendingar um hvað betur má fara hjálpa okkur að gera enn betur.