Meðferðarnámskeið við OCD

Sumarhópnámskeið fyrir unglinga með OCD

Um námskeiðið

Tilraunaúrræðið Sumarnámskeið fyrir unglinga með OCD verður haldið vorið 2024. Skimunarferli opnast þann 1. febrúar 2024. Námskeiðið er ætlað unglingum með áráttu- og þráhyggjuröskun og foreldrum þeirra. 

Þetta meðferðarnámskeið er fyrir foreldra og unglinga á aldrinum 13-18 ára, fæðingarár 2006 - 2010.

Námskeiðið er á vegum Geðheilsumiðstöðvar barna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sálfræðideildar Háskóla Íslands.

Í hópnum verða 6 - 8 unglingar sem glíma við OCD. Hver og einn hefur sinn þjálfara eða meðferðaraðila í hverjum tíma. Reyndir sálfræðingar í heilsugæslunni eru meðferðaraðilar á námskeiðinu. 

Fyrirkomulag

Á OCD sumarnámskeiðinu fá allir fræðslu um hvað OCD er og hvernig það skemmir fyrir manni dagsdaglega. Unglingarnir læra aðferðir til að minnka þráhyggjur og áráttur.

Í hverjum tíma gera unglingar líka talsvert af æfingum, hver og einn með sínum þjálfara. Þegar unglingarnir vinna verkefni á námskeiðinu og taka þátt í áskorunum/æfingum til að streitast á móti OCD-inu, þá vinna þau sér inn stig sem þau geta skipta út fyrir ýmis gjafakort. 

Hluti af námskeiðinu felur í sér að foreldrar mæta einnig í hóptíma með hinum foreldrunum til að skilja betur OCD, hvernig áhrif það hefur í daglegu lífi og hvaða verkfæri duga til að streitast á móti því. Foreldratímunum verður stýrt af reyndum sálfræðingi. 

Könnun

OCD sumarnámskeiðið er nýtt tilraunaúrræði hjá heilsugæslunni. Námskeiðið var þróað í Kanada og góð reynsla er af því þar. Til kanna hvort námskeiðið reynist eins vel hérlendis verðu gerð rannsókn á árangrinum.

Foreldrar og unglingar sem taka þátt í námskeiðinu verða beðnir um að svara  spurningalista fyrir námskeið, eftir námskeið og aftur 6 
mánuðum eftir að námskeiðið klárast.  Það er alveg frjálst að svara spurningalistunum  en í hvert sinn sem foreldrar og unglingar svara listunum fá þau sitthvort gjafabréfið í bíó.

Dagskrá

Skimunarferli inn á OCD námskeiðið 2024 opnast þann 1. febrúar 2024.

Meðferðarnámskeið er daglega 2.5 tíma í senn í 10 skipti, eða í 2 vikur alls samfellt

  • Tími 1 
    Unglingar: kl. 13:00-15:30

    Foreldrar: kl. 14:00-15:30

  • Tími 2
    Unglingar: kl. 13:00-15:30

  • Tími 3
    Unglingar: kl. 13:00-15:30

  • Tími 4
    Unglingar: kl. 13:00-15:30
    Foreldrar: kl. 14:00-15:30

  • Tími 5
    Unglingar: kl. 13:00-15:30

  • Tími 6
    Unglingar: kl. 13:00-15:30
    Foreldrar: kl. 14:00-15:30

  • Tími 7
    Unglingar: kl. 13:00-15:30

  • Tími 8
    Unglingar: kl. 13:00-15:30
    Foreldrar: kl. 14:00-15:30

  • Tími 9
    Unglingar: kl. 13:00-15:30

  • Tími 10 - Lokatími og útskrift
    Unglingar: kl. 13:00-15:30
    Foreldrar: kl. 14:00-15:30

Hafðu samband

Ef þig grunar að unglingurinn þinn sé með OCD sem er hamlandi í daglegu lífi, hafðu endilega samband við okkur  til þess að athuga hvort námskeiðið gæti hentað ykkur sem meðferðarúrræði. 

Athugið að sumarnámskeið 2023 er fullbókað, en foreldrum er velkomið að hafa samband fyrir frekari upplýsingar um áframhald námskeiðs síðar. 

Námskeiðsgjald árið 2023 er 25.000 kr.

Meðferðin er niðurgreidd með styrkjum frá Lýðheilsusjóði Landlæknisembættisins, Heilbrigðisráðuneytinu og Barnavinafélaginu Sumargjöf. 

Czy treść była pomocna?

Tak

Rusl-vörn


Dlaczego nie?