Móðurmjólkin er fullkomin fæða

Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði brjóstagjafar sem gott er að fræðast um áður en barn fæðist.  

Fræðsla um brjóstagjöf

Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði brjóstagjafar sem gott er að fræðast um áður en barn fæðist.  

Rætt verður um brjóstagjöf fyrstu vikurnar eftir fæðingu, aðferðir við að leggja á brjóst, tengslamyndun og hvernig greina má þarfir barnsins. 

Einnig verður farið yfir eiginleika og framleiðslu brjóstamjólkur og vandamál sem geta komið upp fyrstu vikurnar.

Námskeiðið hentar vel snemma í meðgöngu.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Lilja Björk Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og brjóstagjafaráðgjafi IBCLC.

Umsjón

Skrifstofa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með námskeiðinu.

Nánari upplýsingar í síma 513-5000

Fyrirkomulag námskeiðsins

Hvert námskeið er 1 skipti, 2 1/2 klst í hvert sinn.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. 

Fjarnámskeið

Námskeiðin fara fram á Teams. Þeir sem skrá sig fá sendan hlekk nokkrum dögum fyrir námskeiðið.

Leiðbeinandi er Lilja Björk Kristinsdóttir hjúkrunarfræðingur.

Næstu námskeið:

  • Fjarnámskeið 23. apríl, kl.17:00 til 19:30

Skráning

Skráningarpóstur er sendur á netfang þátttakanda við staðfestingu. Ef skráningarpóstur berst ekki þarf að hafa samband á heilsugaeslan@heilsugaeslan.is.