Heilbrigðisskoðun innflytjenda annast skoðun flóttamanna og hælisleitenda og annarra innflytjenda eftir komuna til landsins og gefur út heilbrigðisvottorð þeim til handa sem sækja um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi.
 
Fyrir útgáfu vottorðs þarf að fara fram heilbrigðisskoðun í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga nr. 19/1997 og reglugerðar nr. 131/1999. Heilbrigðisskoðunin, sem vottorðið byggir á, fer þannig fram:
 
- Viðtal og skoðun læknis.
- Í flestum tilfellum eru gerðar eftirfarandi rannsóknir: - Berklapróf hjá þeim sem eru 35 ára og yngri.  
- Tekin er röntgenmynd af lungum hjá þeim sem eru eldri en 35 ára til að útiloka virka berkla.
 
-  Blóðprufa þar sem leitað er að: -  HIV / Alnæmi  
-  Lifrarbólgu B og C  
-  Sárasótt
 
- Í einstaka tilfellum metur læknir það svo að ástæða sé til að gera aðrar rannsóknir á grundvelli sögu sjúklings.
 
Þeir sem fara í berklapróf þurfa að koma tvisvar. Aflestur á berklaprófi fer fram 2-3 sólarhringum eftir að próf er gert. Ef berklapróf er jákvætt er tekin lungnamynd til að útiloka virka berkla.
Ef niðurstöður HIV-, lifrarbólgu- og / eða sárasóttarprófa gefa tilefni til er sjúklingur boðaður aftur til viðtals og greidd leið til bestu úrræða á Landspítala.
 
Ef allar niðurstöður eru eðlilegar skrifar læknir heilbrigðisvottorð.
 
Gera má ráð fyrir að útgáfa vottorðs taki 1-2 vikur.