Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Seltjarnarnesi og Vesturbæ?
Almennar upplýsingar
Heilsugæslan er opin 8:00 - 17:00
Svarað er í sima 8:00 til 16:00
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Viltu skrá þig hjá okkur?
Hvað viltu gera?
Þú getur séð hvaða stöð er þín á Mínum síðum Heilsuveru og í Réttindagátt sjúkratrygginga.
Þú getur skráð þig á heilsugæslustöð að eigin vali í Réttindagátt eða á stöðinni sjálfri.
Öllum er velkomið á skrá sig á stöðina og við tökum vel á móti þér.
Panta þarf tíma í blóðrannsókn í síma 513-6100 og alltaf þarf beiðni að liggja fyrir.
Beiðni um lyfjaendurnýjun þarf að berast fyrir kl. 11:00 í síma 513-6100.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðum Heilsuveru.
Þú getur bókað tíma með því að hringja á stöðina.
Ekki er hægt að bóka tíma í heilsuveru meðan neyðarástand vegna COVID-19 varir.
Ef þú getur ekki beðið eru samdægurstímar, skyndimóttaka eða síðdegisvakt möguleiki.
Það er alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17.
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Örugg gagnaskil
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Seltjarnarnesi og Vesturbæ með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Allir eru velkomnir á stöðina
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ þjónar einkum íbúum á Seltjarnarnesi og Reykvíkingum í vesturbæ sunnan Hringbrautar, þar með talið háskólahverfi og Skerjafirði, en allir eru velkomnir a stöðina.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Hvað hentar þér best?
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvaða leið hentar þér best?
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú getur bókað tíma með því að hringja á stöðina.
Ekki er hægt að bóka tíma í heilsuveru meðan neyðarástand vegna COVID-19 varir.
Ef þú getur ekki beðið eru samdægurstímar, skyndimóttaka eða síðdegisvakt möguleiki.
Milli kl. 8:00 og 17:00 alla virka daga eru læknar og hjúkrunarfræðingar á vakt.
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum í mínar síður í Heilsuveru. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-6100.
Símatíma hjá lækni þarf að panta fyrir kl. 11:00 í síma 513-6100.
Læknar hringja í uppgefið símanúmer eins fljótt og hægt er.
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænt eða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum eftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun í Heilsuvera.is. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Beiðni um lyfjaendurnýjun þarf að berast fyrir kl. 11:00 í síma 513-6100.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu þarf að tilkynna veikindin á heilsugæslustöðina sem fyrst eftir að veikindi hefjast.
Í stuttum veikindum er tekið á móti beiðnum um veikindavottorð vegna skóla í síma: 513-6100.
Hafa skal beint samband við lækni vegna lengri veikinda og annarra vottorða s.s. vinnuveitendavottorða.
Læknar stöðvarinnar skrifa gjarnan tilvísanir til sérgreinalækna.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Læknar stöðvarinnar
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig sérnámslæknar og unglæknar
- Alexander Gabríel Guðfinnsson sérnámslæknir
- Anna Kr. Jóhannsdóttir heimilislæknir
- Ansgar Bruno Jones heimilislæknir
- Ásthildur Erlingsdóttir heimilislæknir
- Einar Þór Þórarinsson heimilislæknir
- Guðmundur Haukur Jörgensen heimilislæknir
- Hannes Hrafnkelsson heimilislæknir
- Sandra Seidenfaden sérnámslæknir
- Sigurlaug Árnadóttir heimilislæknir
- Sjöfn Ragnarsdóttir sérnámslæknir
- Sverrir Arnar Friðþjófsson sérnámslæknir
- Tryggvi Baldursson heimilislæknir
- Una Jóhannesdóttir sérnámslæknir
- Þorgeir Orri Harðarson læknir
Ráðgjöf hjúkrunarfræðinga
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17.
1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Smáslys og bráð veikindi
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.
Hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar
- Anna Lilja Sigurðardóttir
- Arna Borg Einarsdóttir
- Arna Dröfn Hauksdóttir
- Emilía Petra Jóhannsdóttir
- Esther Ósk Ármannsdóttir
- Guðný Kristrún Guðjónsdóttir
- Magnea Vilhjálmsdóttir
- María Kristinsdóttir
- Theodóra Reynisdóttir
- Þórunn Ólafsdóttir
- Þórunn Hildigunnur Óskarsdóttir
Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Heilsuvernd og heilsuefling
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Ljósmæður stöðvarinnar:
- Gígja Sveinsdóttir
- Guðrún Hulda Gunnarsdóttir
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
Skólahjúkrunarfræðingar í skólum hverfisins eru:
- Hagaskóli: Arna Dröfn Hauksdóttir
- Grandaskóli: Theodóra Reynisdóttir
- Melaskóli: Anna Lilja Sigurðardóttir
- Mýrarhúsaskóli: Esther Ósk Ármannsdóttir
- Valhúsaskóli: Þórunn Ólafsdóttir
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífsstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdóma svo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
Leghálsskimun
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni fyrir hádegi á miðvikudögum.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar og ljósmæður vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
- Sjúkraþjálfari stöðvarinnar er Arna Steinarsdóttir
- Lestu meira um hreyfiseðla
Klínískur lyfjafræðingur
Verkefni lyfjafræðingsins er einkum að fara yfir lyfjalista hjá þeim sem eru á mörgum lyfjum. Markmiðið er að draga úr lyfjatengdum vandamálum.
Heimilislæknar eða hjúkrunarfræðingar vísa til klíníska lyfjafræðingsins. Ef þú heldur að þjónusta lyfjafræðings henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
- Klíníski lyfjafræðingur stöðvarinnar er Pétur Gunnar Sigurðsson
Þjónusta sálfræðinga
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
Arna Björk Birgisdóttir sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga.
Gunnhildur Ólafsdóttir og Telma Lind Smáradóttir sálfræðingar sinna meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna
HAM námskeið
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið.
Nánari upplýsingar
Samvinna fyrir þig
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ þjónar einkum íbúum á Seltjarnarnesi og Reykvíkingum í vesturbæ sunnan Hringbrautar, þar með talið háskólahverfi og Skerjafirði, en allir eru velkomnir a stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Um heilsugæslustöðina
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf
- Svæðisstjóri og fagstjóri hjúkrunar: Emilía P. Jóhannsdóttir
- Fagstjóri lækninga: Einar Þór Þórarinsson
- Skrifstofustjórar: Brynja Guðmundsdóttir og Dagný Ásta Magnúsdóttir
Fannst þér efnið hjálplegt?
Já