Almennar upplýsingar

icon

Contact us



Bókuð móttaka, heilsuvernd og símaráðgjöf
icon

Skyndimóttaka og síðdegisvakt



Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi 8:00 - 16:00. Síðdegisvakt 16:00 - 17:00, mánudaga til fimmtudaga. Ekki þarf að panta tíma.

COVID-19 bólusetningar í Mjódd

Við bendum á að bólusett er alla virka daga milli klukkan 9 og 15 hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Álfabakka 14a í Mjódd. Ekki þarf að bóka tíma fyrirfram í bólusetningar í Álfabakkanum, aðeins að mæta á opnunartíma.

Hvað viltu gera?

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Hvammi með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Allir eru velkomnir á stöðina

Heilsugæslan Hvammi þjónar fyrst og fremst íbúum Kópavogs sem búa austan Digranesvegar og Bröttubrekku, sunnan Kópavogslækjar (Fífuhvamms) og sunnan Nýbýlavegar (með Hólmum), en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum Réttindagátt sjúkratrygginga.

 

Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar  eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um  stöðina.

 

Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is

Við tökum vel á móti þér

Hvað hentar þér best?

Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.

Hvaða leið hentar þér best?

Læknar stöðvarinnar

Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig sérnámslæknar og unglæknar.

  • Baldur Helgi Möller sérfræðingur í heimilislækningum
  • Einar Bragi Árnason sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Guðný Ásgeirsdóttir sérfræðingur í heimilislækningum
  • Harpa Björnsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Ólöf Jónsdóttir barnalæknir
  • Sigríður L. Signarsdóttir sérfræðingur í heimilislækningum
  • Sigurður V. Guðjónsson sérfræðingur í heimilislækningum
  • Thelma Margrét Andersen sérfræðingur í heimilislækningum

Við erum á vaktinni allan daginn

Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga

 

Hægt er að fá símaráðgjöf  hjá  hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga  í síma 513-5850.

Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.

 

Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar alla daga frá kl. 8:00 til 22:00 í síma 513-1700 og í netspjalli á heilsuvera.is.

 

Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi

 

Það er líka hægt að koma í móttökuna á dagvinnutíma.

Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.

 

Bókuð móttaka

 

Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.

Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.

 

Hvað er í gert í opnu móttökunni?

Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.

 

Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.

 

Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.

 

Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
 

Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi

 

Lestu meira um opna móttöku heilsugæslustöðva

Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna

Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna

Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.

Hreyfiseðill

Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.

Heimilislæknar, ljósmæður og hjúkrunarfræðingar. vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.

Leghálsskimun

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.

Skimanir eru á stöðinni eftir hádegi á fimmtudögum.

Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali. 

 

Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun

Heilsuvernd og heilsuefling

Þjónusta sálfræðinga

Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.

 

Fjóla Dís Markúsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga. 

Lilja Dís Ragnarsdóttir og Jónas Haukur Einarsson sálfræðingar sinna meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna

HAM námskeið

Námskeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM) eru í boði fyrir fullorðna skjólstæðinga stöðvarinnar.

Samvinna fyrir þig

Heilsugæslan Hvammi þjónar einkum íbúum Kópavogs sem búa austan Digranesvegar og Bröttubrekku, sunnan Kópavogslækjar (Fífuhvamms) og sunnan Nýbýlavegar (með Hólmum). en allir eru velkomnir á stöðina.

Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.

Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.

Um heilsugæslustöðina

magnifier
HHStaffJobtitlePhoneEmail
Anna Sigríður SigmundsdóttirRegistered nurse513-5850
Baldur Helgi Möller513-5850
Brynhildur GuðmundsdóttirRegistered nurse513-5850
Dagný GuðmundsdóttirRegistered nurse513-5850
Einar Bragi ÁrnasonMedical trainee in general practice513-5850
Ester JóhannsdóttirRegistered nurseÍ leyfi
Fjóla Dís MarkúsdóttirPsychologistÍ leyfi
Guðbjörg Guðmundsdóttir513-5850
Guðný Ásgeirsdóttir General practitioner513-5850
Hallfríður Bjarnadóttir513-5850
Harpa Björnsdóttir513-5850
Helga JensenRegistered nurse513-5850
Hildur Björg IngibertsdóttirRegistered nurse513-5850
Hildur Brynja SigurðardóttirMidwife513-5850
Jónas Haukur EinarssonPsychologist513-5850
Kristín Birna GrétarsdóttirMedical intern513-5850
Kristín ÓlafsdóttirRegistered nurse513-5850
Lilja Dís RagnarsdóttirPsychologist513-5850
Margrét Gísladóttir513-5850
Margrét Stefánsdóttir513-5850
María Bergmann GuðjónsdóttirRegistered nurse513-5850
Ólöf JónsdóttirPediatrician513-5850
Rut Gunnarsdóttir513-5850
Sigríður Lilja SignarsdóttirGeneral practitioner513-5850
Sigurbjörg H. Baldursdóttir513-5850
Sigurður Sölvi SvavarssonPhysiotherapist694-7071
Sigurður Víglundur GuðjónssonGeneral practitioner513-5850
Telma Ingibjörg SigurðardóttirMedical trainee in general practice513-5850
Thelma Margrét AndersenGeneral practitioner513-5850
Unnur GuðjónsdóttirRegistered nurse513-5850

Did you find the content helpful?

Yes

Rusl-vörn


Why not?