Almennar upplýsingar

icon

Heilsugæslan er opin 8:00 - 16.00



Bókuð móttaka, heilsuvernd og símaráðgjöf
icon

Skyndimóttaka og síðdegisvakt



Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi 8:00 - 16:00. Síðdegisvakt mánudaga - föstudaga 16:00-17:00. Ekki þarf að panta tíma.

Hér fyrir þig: Við erum á vaktinni allan daginn

Það er opin móttaka allan daginn fyrir bráð veikindi og smáslys. Símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga er líka í boði allan daginn.

Síðdegisvaktin tekur svo við kl. 16:00-17:00 mánudaga til föstudaga.

COVID-19 Bólusetningar

COVID-19 bólusetningar eru á miðvikudögum kl. 13:00. Þá er boðið upp á 1. 2. og 3. skammt. Vinsamlega bókið tíma á mínum síðum Heilsuveru eða í síma. Á fimmtudögum er 4. skammtur bóluefnisins í boði ásamt bóluefni gegn inflúensu.

Hvað viltu gera?

Örugg gagnaskil

Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Efra Breiðholti með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil

Allir eru velkomnir á stöðina

Heilsugæslan Efra-Breiðholti þjónar fyrst og fremst íbúum Efra-Breiðholts en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum Réttindagátt sjúkratrygginga.

 

Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.

 

Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á heilsuvera.is

Við tökum vel á móti þér

Læknisþjónustan

Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.


Hvað hentar þér best?

Þjónusta í boði

Læknar stöðvarinnar

Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.

  • Anna Kristín Þórhallsdóttir heimilislæknir
  • Áslaug Katrín Hálfdánardóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Gerður Jónsdóttir heimilislæknir
  • Ívar Elí Sveinsson læknir
  • Katrín Jónsdóttir heimilislæknir
  • Kristín Hansdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum
  • Nanna S. Kristinsdóttir heimilislæknir
  • Þórunn Anna Karlsdóttir heimilislæknir

Við erum á vaktinni allan daginn

Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga

 

Hægt er að fá símaráðgjöf  hjá  hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga  í síma 513-5300.

Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.

 

Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar alla daga frá kl. 8:00 til 22:00 í síma 513-1700 og í netspjalli á heilsuvera.is.

 

Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi

 

Það er líka hægt að koma í móttökuna á dagvinnutíma.

Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.

 

Bókuð móttaka

 

Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.

Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.

 

Hvað er í gert í opnu móttökunni?

Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.

 

Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.

 

Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.

 

Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
 

Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi

 

Lestu meira um opna móttöku heilsugæslustöðva

Heilsuvernd mæðra, ung- og smábarna, skólabarna, eldra fólks og allra hinna

Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna. Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldra fólki.

Heilsuvernd og heilsuefling

Leghálsskimun

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.

Skimanir eru á stöðinni annan hvern þriðjudag eftir hádegi.

Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali. 

 

Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun

Hreyfiseðill

Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.

Heimilislæknar, ljósmæður og sálfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.

Klínískur lyfjafræðingur

Verkefni lyfjafræðingsins er einkum að fara yfir lyfjalista hjá þeim sem eru á mörgum lyfjum. Markmiðið er að draga úr lyfjatengdum vandamálum. 

 

Heimilislæknar eða hjúkrunarfræðingar vísa til klíníska lyfjafræðingsins. Ef þú heldur að þjónusta lyfjafræðings henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.

 

  • Klíníski lyfjafræðingur stöðvarinnar er Elísabet Jónsdóttir

Þjónusta sálfræðinga

Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.

  • Sálfræðingar stöðvarinnar eru Elín Elísabet Halldórsdóttir og Sólveig Eyfeld Unnardóttir.

Sálfræðingar á heilsugæslustöðinni sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og fullorðna og eru í nánu samtarfi við heimilislækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæður stöðvarinnar.

HAM námskeið

Námskeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM) eru í boði fyrir fullorðna skjólstæðinga stöðvarinnar.

Samvinna fyrir þig

Heilsugæslan Efra-Breiðholti þjónar fyrst og fremst íbúum Efra-Breiðholts en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina.

Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.

Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.

Um heilsugæslustöðina

magnifier
PersonelPersonelTelefonEmail
Anna Dóra Þorgeirsdóttir513-5300
Anna Kristín Þórhallsdóttir513-5300
Áslaug Katrín Hálfdánardóttir513-5300
Berglind Jóhannsdóttir513-5300
Elín Elísabet Halldórsdóttir513-5300
Elín Úlfarsdóttir513-5300
Elísabet Heiðarsdóttir513-5300
Elísabet Jónsdóttir513-5300
Erna Kristjánsdóttir666-0255
Ester Magnúsdóttir513-5300
Gerður Jónsdóttir513-5300
Hannesína Sch. Skarphéðinsdóttir513-5300
Harpa Rún Elínardóttir513-5300
Heiða Margrét Hilmarsdóttir513-5300
Hólmfríður Rósa Jóhannsdóttir 513-5300
Ingrida Induse513-5300
Ívar Elí Sveinsson513-5300
Katrín Jónsdóttir513-5300
Kristín Auður Halldórsdóttir513-5300
Kristín HansdóttirÍ leyfi
Kristín Hrönn Gunnarsdóttir513-5300
Nanna Sigríður Kristinsdóttir513-5300
Sólveig Eyfeld Unnardóttir513-5300
Svava Björk Jónasdóttir513-5300
Thelma Baldursdóttir513-5300
Vildís Bergþórsdóttir513-5300
Þórunn Anna Karlsdóttir513-5300

Czy treść była pomocna?

Tak

Rusl-vörn


Dlaczego nie?