Móðurmjólkin er fullkomin fæða

Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði brjóstagjafar sem gott er að fræðast um áður en barn fæðist.  

Fræðsla um brjóstagjöf

Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði brjóstagjafar sem gott er að fræðast um áður en barn fæðist.  

Rætt verður um brjóstagjöf fyrstu vikurnar eftir fæðingu, aðferðir við að leggja á brjóst, tengslamyndun og hvernig greina má þarfir barnsins. 

Einnig verður farið yfir eiginleika og framleiðslu brjóstamjólkur og vandamál sem geta komið upp fyrstu vikurnar.

Námskeiðið hentar vel snemma í meðgöngu.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Lilja Björk Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og brjóstagjafaráðgjafi IBCLC.

Umsjón

Skrifstofa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með námskeiðinu.

Nánari upplýsingar í síma 513-5000

Fyrirkomulag námskeiðsins

Hvert námskeið er 1 skipti, 2 1/2 klst í hvert sinn.

Staðnámskeið

Námskeiðið er haldið á Skrifstofu HH í Álfabakka 16. Gengið er inn um aðalinngang og niður í kjallara til vinstri niður stigann þegar komið er inn. Það er mikilvægt að mæta tímanlega og gjarnan má hafa með sér smávægilegt að borða.

Fjarnámskeið

Námskeiðin fara fram á Teams. Þeir sem skrá sig fá sendan hlekk nokkrum dögum fyrir námskeiðið.

Leiðbeinandi er Lilja Björk Kristinsdóttir hjúkrunarfræðingur.

Næstu námskeið:

  • Fjarnámskeið 25. október, kl. 17:00 til 19:30
  • Fjarnámskeið 28. nóvember, kl. 17:00 til 19:30
  • Fjarnámskeið 4. janúar, kl. 17:00 til 19:30

Skráning og verð

Verð 7.281 kr. fyrir par og 3.701 kr. fyrir einstakling.

  • Námskeiðsgjald greiðist við skráningu með greiðslukorti.

Skráningarpóstur er sendur á netfang þátttakanda við staðfestingu. Ef skráningarpóstur berst ekki þarf að hafa samband á heilsugaeslan@heilsugaeslan.is.