Tilraunaúrræðið Sumarnámskeið fyrir unglinga með OCD verður haldið 23. maí til 6. júní 2023 (fullbókað). Námskeiðið er ætlað unglingum með áráttu- og þráhyggjuröskun og foreldrum þeirra.
Þetta meðferðarnámskeið er fyrir foreldra og unglinga á aldrinum 13-18 ára, fæðingarár 2005 - 2009.
Námskeiðið er á vegum Geðheilsumiðstöðvar barna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sálfræðideildar Háskóla Íslands.
Í hópnum verða 6 - 8 unglingar sem glíma við OCD. Hver og einn hefur sinn þjálfara eða meðferðaraðila í hverjum tíma. Reyndir sálfræðingar í heilsugæslunni eru meðferðaraðilar á námskeiðinu.