Skemmtileg sumarstörf - Sjúkraliði
Heimahjúkrun HH leitar eftir sjúkraliðum eða sjúkraliðanemum í sumarstörf. Um er að ræða tímabundin störf þar sem unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 40-100% eða skv. samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingshæfð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum. Sjúkraliðar bera ábyrgð á að vinna samkvæmt hjúkrunaráætlun sem lögð er til grundvallar hjúkrunarmeðferð skjólstæðinga. Sjúkraliðar veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra leiðbeiningar og fræðslu.Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Sjúkraliði vinnur náið í teymi með öðrum sjúkraliðum, hjúkrunarfræðingum og öðrum starfsmönnum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Sjúkraliði sinnir einnig öðrum verkefnum sem þeim er falið af teymisstjóra ásamt því að taka þátt í þróunarverkefnum og gæðastarfi innan stofnunar. Sjúkraliði mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma.
Hæfnikröfur
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Mikil samskiptahæfni
- Faglegur metnaður og áhugi á að vinna við heimahjúkrun
- Reynsla af heimahjúkrun æskileg
- Sjálfstæði í starfi
- Gilt ökuleyfi
- Góð íslensku og enskukunnátta
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 40 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900
HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær