Skemmtileg sumarstörf - Félagsliði

Heimahjúkrun HH óskar eftir félagsliðum í sumarstörf. Um er að ræða tímabundin störf þar sem unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 40-100% eða skv. samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingsmiðuð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Félagsliði aðstoðar við umönnun ásamt því að veita skjólstæðingum félagslegan stuðning. Félagsliði vinnur náið í teymi ásamt sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Félagsliði mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma.

Hæfnikröfur

  • Félagsliðamenntun
  • Sjálfstæði í starfi
  • Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Gilt ökuleyfi
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til að óska eftir hreinu sakavottorði. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 40 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900

HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær

Sækja um starf »