Íþróttafræðingur - Heimahjúkrun HH
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir íþróttafræðingi í endurhæfingu í heimahúsi innan heimahjúkrunar. Um er að ræða ótímabundið starf. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl næstkomandi eða eftir samkomulagi.
Endurhæfing í heimahúsi byggist á þverfaglegri endurhæfingu inni á heimili skjólstæðings eða í hans nánasta umhverfi. Markmiðið er að endurheimta og viðhalda sjálfstæði og gera skjólstæðingnum kleift að taka áfram þátt í þeim athöfnum sem skipta hann máli. Þjónustan er tímabundin og ætluð þeim sem eru með færniskerðingu og þurfa heimahjúkrun.
Endurhæfingarteymið samanstendur af þverfaglegu teymi heilbrigðisstarfsfólks þar sem veitt er einstaklingsmiðuð þjónusta. Endurhæfingaráætlun byggist á þörfum og óskum skjólstæðingsins.
Endurhæfing í heimahúsi innan Heimahjúkrunar HH sinnir einstaklingum sem búa í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Íþróttafræðingur vinnur í þverfaglegu teymi við að aðstoða skjólstæðinga við að vera eins virkir og sjálfstæðir í daglegu lífi og hægt er. Íþróttafræðingur metur og greinir líkamlega færni og heilsu skjólstæðings. Hann veitir stuðning og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra varðandi hreyfingu, þjálfun og forvarnir. Skipuleggur og veitir þjónustu á sínu fagsviði í samráði við teymi. Hann tekur virkan þátt í þverfaglegu samstarfi, handleiðslu, fræðslu og starfsmannafundum. Hann vinnur sjálfstætt við mat og ráðgjöf.
Hæfnikröfur
- Háskólanám í íþróttafræðum
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Færni til að vinna í þverfaglegu teymi
- Þekking og hæfni til að meta þarfir skjólstæðinga og finna viðeigandi lausnir
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Góð íslensku kunnátta og góð almenn tölvukunnátta skilyrði
- Gilt ökuleyfi
Fríðindi í starfi
- Heilsueflingarstyrkur
- Samgöngustyrkur
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900
HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær