Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda? 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að hjúkrunarfræðingi til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi, við ráðgjöf, greiningu og meðferð barna með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda. Kennsla og ráðgjöf til annarra fagaðila ásamt vísindastörfum verður einnig mikilvægur hluti af starfinu. 

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. 

Um er að ræða 100% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Meðferð og eftirfylgni barna með fjölbreyttan taugaþroska
  • Gerð meðferðaáætlana, endurmat og eftirfylgd
  • Umsjón og yfirsýn yfir meðferð og úrræði notendahóps
  • Þverfagleg teymisvinna
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu þjónustu 
  • Ráðgjöf og fræðsla 
  • Skipulagning fræðslu til barna og fjölskyldna þeirra
  • Námskeiðshald
  • Heilsumælingar og ráðgjöf
  • Samvinna við aðra fagaðila innan sem og utan stofnunar

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
  • Meistaranám eða diplómanám í geðhjúkrun kostur
  • Reynsla sem nýtist í starfi 
  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu kostur
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
  • Faglegur metnaður, góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf 
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð Íslenskukunnátta, færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku skilyrði
  • Góð almenn enskukunnátta æskileg

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.12.2025

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kristmundsdóttir - Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6600

HH Geðheilsumiðstöð barna
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »