Talmeinafræðingur - Geðheilsumiðstöð barna
Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að talmeinafræðingi til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi, við ráðgjöf, greiningu og meðferð barna með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda Kennsla og ráðgjöf til annarra fagaðila ásamt vísindastörfum verður einnig mikilvægur hluti af starfinu.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. janúar n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Talmeinafræðingur starfar í þverfaglegu teymi við greiningu, ráðgjöf barna með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda. Talmeinafræðingur leggur mat á málþroska, samskiptafærni og aðra færniþætti sem tengjast tali og máli með stöðluðum próf- og matstækjum og klínískum athugunum. Talmeinafræðingur veitir ráðgjöf og eftirfylgd eftir þörfum og tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu.
Hæfnikröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem talmeinafræðingur
- Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Sérþekking á málþroska barna/unglinga
- Sérþekking á málþroskaröskun DLD æskileg
- Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Góð almenn enskukunnátta æskileg
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.11.2025
Nánari upplýsingar veitir
Linda Kristmundsdóttir - Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6600
Hrafnhildur Halldórsdóttir - hrafnhildur.halldorsdottir@heilsugaeslan.is - 513-660
HH Geðheilsumiðstöð barna
Álfabakki 16
109 Reykjavík