Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Hamraborg

Heilsugæslan Hamraborg óskar eftir að ráða sérfræðing í heimilislækningum.  Um er að ræða 100% ótímabundið starf en með möguleika á lægra starfshlutfalli. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Starfið felur í sér mikla ábyrgð og er krefjandi í skemmtilegu starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. 

Ef ekki fæst sérfræðingur í starfið, kemur til greina að ráða metnaðargjarnan almennan lækni sem hefur áhuga á að kynnast heimilislækningum og getur starfið verið góður undirbúningur fyrir sérnám í heimilislækningum.

Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt sérnámslæknum, sérnámsgrunnslæknum, sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og riturum. Heilsugæslan Hamraborg veitir almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. í almennri læknismóttöku, heilsuvernd, bráðaþjónustu á daginn og síðdegisvakt. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Sérfræðimenntun í heimilislækningum
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Reynsla af kennslu er æskileg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttir, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.11.2025

Nánari upplýsingar veitir

Einar Eyjólfsson - einar.eyjolfsson@heilsugaeslan.is - null

Huldís Mjöll Sveinsdóttir - huldis.mjoll.sveinsdottir@heilsugaeslan.is - null

HH Hamraborg lækningar
Hamraborg 8
200 Kópavogur

Sækja um starf »