Ljósmóðir - Heilsugæslan Árbæ
Við leitum að Ljósmóður sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 50% ótímabundið starf eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Hjá Heilsugæslunni Árbæ starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Megin starfssvið ljósmóður er mæðravernd og leghálsskimanir.
Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
- Starfsleyfi sem ljósmóðir
- Reynsla af leghálsskimunum kostur
- Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
- Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur
- Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
- Góð þekking/próf í brjóstagjafaráðgjöf
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgar Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 03.11.2025
Nánari upplýsingar veitir
Helga Sævarsdóttir - helga.saevarsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5200
HH Árbæ hjúkrun
Hraunbæ 115
110 Reykjavík