Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi
Heilsugæslan Hvammi auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi til starfa ótímabundið í 80-100% starf við heilsugæsluhjúkrun. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. nóvember nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæslan Hvammi veitir íbúum í Kópavogi almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is ).
Helstu verkefni og ábyrgð
Meginstarfssvið er ung- og smábarnavernd og/eða skólahjúkrun sem og hjúkrunarmóttaka.
Ung og smábarnavernd eflir heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra.
Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni mótöku er tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku er tekið á móti öðrum erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun er æskileg
- Reynsla af fjölskylduhjúkrun er æskileg
- Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
- Þekking á forvarna- og heilsueflingarstarfi
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
- Góð samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Góð íslenskukunnátta og almenn tölvukunnátta
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2025
Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Kristín Barkardóttir - Sigrun.Kristin.Barkardottir@heilsugaeslan.is - null
HH Hvammi hjúkrun
Hagasmára 5
201 Kópavogur