Almennur starfsmaður - Heimahjúkrun HH
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins óskar eftir almennum starfsmanni í 40-90% ótímabundið starf frá og með 1. október nk. eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða starf við heimahjúkrun á dag-, kvöld- og helgarvöktum.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar má finna inni á www.heilsugaeslan.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Starfsmaður aðstoðar við umönnun ásamt því að veita skjólstæðingum félagslegan stuðning. Hann vinnur náið í teymi ásamt sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Starfsmaður mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma.
Hæfnikröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af ummönnun æskileg
- Sjálfstæði í starfi
- Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Gilt ökuleyfi
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 40 - 90%
Umsóknarfrestur er til og með 22.09.2025
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900
HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær