Heilsugæslan Miðbæ - móttökuritari

Heilsugæslan Miðbæ leitar að skemmtilegum, jákvæðum og lífsglöðum einstaklingi sem finnst gaman að taka á móti fólki í starf móttökuritara. Um er að ræða starf í lifandi umhverfi þar sem reynir á samskiptahæfni og þjónustulund viðkomandi. Ef þér finnst gaman að tala við fólk og veita framúrskarandi þjónustu þá viljum við gjarnan fá að hitta þig.

Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
  • Uppgjör í lok dags
  • Afgreiðsla tímapantana í afgreiðslu
  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna 
  • Aðstoða við hjúkrunarfræðinga eftir þörfum
     

Hæfnikröfur

  • Nám sem nýtist í starfi
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og rík þjónustulund
  • Reynsla af móttökuritarastarfi æskileg
  • Reynsla af Sögukerfi kostur
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn enskukunnátta æskileg

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.09.2025

Nánari upplýsingar veitir

Aðalbjörg Ósk Angantýsdóttir - adalbjorg.osk.angantysdottir@heilsugaeslan.is - 513-5950

HH Miðbæ
Vesturgötu 7
107 Reykjavík

Sækja um starf »