Málastjóri - Geðheilsuteymi HH austur

Ertu metnaðarfullur málastjóri sem brennur fyrir bættri geðheilsu og velferð fólks? Geðheilsuteymi HH austur leitar að öflugum og samhentum liðsfélaga í 100% ótímabundið starf. Hér gefst tækifæri til að hafa áhrif á líf fólks með því að efla virkni, sjálfstæði og lífsgæði skjólstæðinga í nánu samstarfi við samheldið og þverfaglegt teymi.

Við leitum að einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í spennandi og krefjandi verkefnum og getur hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Teymið er staðsett að Stórhöfða 23 og í því starfar fjölbreyttur hópur fagfólks: hjúkrunarfræðingar, geðlæknar, sálfræðingar, þroskaþjálfi, geðsjúkraliði, notendafulltrúi, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingar og skrifstofustjóri. Lögð er rík áhersla á jákvæðan starfsanda og faglegan stuðning.

Nánari upplýsingar má finna inni á (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinna málastjórn, þ.e. hafa umsjón og yfirlit yfir meðferð notendahóps
  • Vinna í þverfaglegu meðferðarteymi 
  • Samþætta meðferð og leita leiða til að bæta líðan skjólstæðinga 
  • Setja fram meðferðaráætlun og sinna endurmati 
  • Sinna ráðgjöf og fræðslu til notenda og aðstandenda
  • Viðtöl á starfsstöð og/eða í heimavitjunum
  • Námskeiðahald
  • Skipulagning og þátttaka í fjölskyldufundum
  • Samstarf við aðra fagaðila innan og utan heilsugæslunnar

Hæfnikröfur

  • Íslenskt leyfi eða starfsréttindi á félags- eða heilbrigðissviði
  • Viðbótarnám eða sérnám, er nýtist í starfi, æskilegt
  • Reynsla af vinnu með einstaklinga með geðraskanir æskileg
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Klínísk reynsla innan geðheilbrigðiskerfisins s.l. 5 ár æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, framsýni og metnaður í starfi skilyrði
  • Frumkvæði í starfi og góðir skipulagshæfileikar skilyrði 
  • Hæfni og geta til að starfa í þverfaglegu teymi
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Reynsla af fræðslu- og námskeiðahaldi æskileg
  • Hæfni og áhugi á verkefnavinnu skilyrði
  • Góð íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta skilyrði

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.  Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.06.2025

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Hrönn Bjarnadóttir - sigridur.hronn.bjarnadottir@heilsugaeslan.is - null

HH Geðheilsuteymi austur
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »