Málastjóri - Geðheilsuteymi HH suður

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að málastjóra við Geðheilsuteymi HH suður sem er þverfaglegt meðferðarteymi. Teymið er til húsa að Bæjarlind 1-3. Um tímabundið starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september eða eftir nánara samkomulagi. 

Við Geðheilsuteymi HH suður starfa reynslumiklir einstaklingar í þéttri og góðri samvinnu sem vinna að málum þjónustuþega í jákvæðu og hvetjandi starfsumhverfi. Teymið er meðferðarteymi og unnið er eftir batahugmyndafræði þar sem einstaklingsmiðuð þjónusta ýtir undir styrkleika og bjargráð notenda. Tækifæri til nýsköpunar og starfsþróunar eru innan teymis og góður starfsandi.  Í teyminu starfa hjúkrunarfræðingar, geðlæknir, heimilislæknir, sálfræðingar, fjölskyldufræðingar, félagsráðgjafar, íþróttafræðingur, ásamt skrifstofustjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinna málastjórn, þ.e. hafa umsjón og yfirsýn yfir meðferð og úrræði ákveðins notendahóps
  • Vinna í þverfaglegu meðferðarteymi
  • Setja fram meðferðaráætlun og sinna reglulegu endurmati
  • Námskeiðahald
  • Sinna ráðgjöf og fræðslu til þjónustuþega og aðstandenda
  • Viðtöl á starfsstöð og/eða í heimavitjunum
  • Skipulagning og þátttaka í fjölskyldufundum
  • Samstarf við aðra fagaðila innan sem og utan stofnunar

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun
  • Starfsleyfi frá Landlækni, hjúkrunarfræði, félagsráðgjöf eða iðjuþjálfun
  • Viðbótarnám eða sérnám er kostur
  • Reynsla af vinnu með einstaklinga með geðraskanir æskileg
  • Reynsla af teymisvinnu er æskileg
  • Klínísk reynsla innan geðheilbrigðiskerfisins s.l. 3 ár æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, framsýni og metnaður í starfi skilyrði
  • Frumkvæði í starfi og góðir skipulagshæfileikar
  • Hæfni og geta til að starfa í þverfaglegu teymi
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Reynsla af fræðslu- og námskeiðahaldi æskileg
  • Hæfni og áhugi á verkefnavinnu
  • Góð íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta skilyrði

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindarstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.06.2025

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Ófeigsdóttir - margret.ofeigsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6380

HH Geðheilsuteymi suður
Bæjarlind 1-3
200 Kópavogur

Sækja um starf »