Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hlíðum

Langar þig að koma og starfa á nýrri og glæsilegri heilsugæslustöð?

Heilsugæslan í Hlíðum óskar eftir hjúkrunarfræðingi í ótímabundið starf. Starfshlutfall er 80%-100% eða samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Við erum að leita að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni. Ef þú ert að leita að starfi þar sem enginn dagur er eins þá hvetjum við þig til þess að sækja um.

Heilsugæslunni er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. Á heilsugæslustöðinni Hlíðum eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, sálfræðingi, hreyfistjóra og riturum. 

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er skólaheilsugæsla ásamt ung- og smábarnavernd.

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. 

Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af skóla- og/eða heilsugæsluhjúkrun æskileg
  • Reynsla af fjölskylduhjúkrun æskileg
  • Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
  • Þekking á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Þekking á réttindum barna
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Heilsustyrkur
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Tækifæri til sí- og endurmenntunar

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Anna Ólafsdóttir - anna.olafsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5900

HH Hlíðum hjúkrun
Skógarhlíð 18
105 Reykjavík

Sækja um starf »